Kim Scott, fyrrverandi eiginkona rapparans Eminem, reyndi að svipta sig lífi á laugardag áður en hún var flutt á sjúkrahús í Michigan, samkvæmt hljóðupptöku frá neyðarlínu.
TMZ hefur undir höndum upptöku af 911-símtalinu sem barst frá heimili Kim Scott. Í upphafi símtalsins heyrist neyðarvörður óska eftir því að fyrstu viðbragðsaðilar verði sendir að heimili hennar í Chesterfield vegna „sjálfsvígstilraunar“.
TMZ greindi áður frá því að Kim Scott hefði verið flutt á sjúkrahús eftir að lögregla og sjúkraflutningamenn brugðust við neyðarkalli frá heimili hennar.
Fréttamiðillinn hefur einnig birt myndskeið sem sýnir þegar Scott var flutt út úr húsinu á sjúkrabörum og komið fyrir í sjúkrabíl.
Kim Scott og Eminem voru tvígift en bæði hjónaböndin enduðu með skilnaði.
Scott hafði fyrr á árinu komist í kast við lögin. Í maí var hún handtekin grunuð um ölvun við akstur eftir að lögregla segir hana hafa ekið á kyrrstæða bifreið í Chesterfield.





















Athugasemdir