Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Heimur

Alanis Moris­sette kemur út sem pankyn­hneigð

Heimur

Fyrsti dagur Brands í Wandsworth-fang­els­inu sagður nið­ur­lægj­andi

Minning

Sæmi Rokk er fall­inn frá

Heimur

Ungur maður lést í umferð­ar­slysi á Kanarí­eyjum

Heimur

Þjóðerni fórn­ar­lamba skotárás­ar­innar í Kraká stað­fest

Fólk

Garðar var sendur til Kabúl eftir árás­ina í Kjúklinga­stræti

Innlent

Kristrún segir ekki þörf á fastri við­veru banda­rísks her­liðs á Íslandi

Innlent

Lang­tíma­spá bendir til þurr­ari vetrar á Íslandi

Heimur

Huckabee segir Satan stjórna and­stæð­ingum Íran­stríðs­ins

Hæðst að frétt Morgunblaðsins

„Hafa blaða­menn ekk­ert hug­ar­flug lengur?“

Hæðst að frétt Morgunblaðsins
Morg­un­blaðið Athuga­semd­ar­kerfi frétta loga oft af ýmsum ástæðum. Mynd: Víkingur

Jón Viðar Jónsson, leik­hús- og sam­fé­lags­rýnir fer fremstur í flokki fólks sem nú hæð­ist að frétt Morg­un­blaðs­ins frá í morgun en þar er sagt frá „dul­ur­fullum ljós­bletti“ sem náð­ist á ljós­mynd í Barkár­dal.

Fjöl­margir skrif­uðu athuga­semd við frétt mbl.is af því sem lýst er sem „dul­ar­fullum ljós­bletti“ sem náð­ist í Barkár­dal en flestum þykir nokkuð aug­ljóst að um sé að ræða end­ur­speglun á linsu. Í frétt­inni er reyndar rætt við Pál Stef­áns­son ljós­mynd­ara sem telur einmitt að um slíkt sé að ræða. Það kemur þó ekki í veg fyrir hæðn­is­legar athuga­semdir við frétt­ina.

Árni Tryggv­ar­son skrifar til að mynda: „Með ólík­indum að ljós­mynd­arar á Morg­un­blað­inu (kannski er líka búið að reka þá alla) hafi ekki verið spurðir álits áður en þetta grín var sett á mið­il­inn. Hver ein­asti maður með vott af þekk­ingu á ljós­myndum veit að þetta er sk. „flare“ eða ljós­brot í lins­unni.“

Stefán H. Krist­ins­son tjáir sig líka: „Er engin eftir á mogg­anum sem hefur eitt­hvað smá vit á ljós­myndun?“

Þá spyr Sigurþór Hjör­leifs­son: „Kallast þetta ekki bara sól?“

Jón Viðar Jónsson, leik­hús­gagn­rýn­andi gekk þó skref­inu lengra en aðrir og skrif­aði heila Facebook-færslu um frétt­ina. Þar full­yrðir hann að það sé svokölluð gúrku­tíð hjá Morg­un­blað­inu. Spyr hann einnig hvort blaða­menn hafi ekk­ert ímynd­un­ar­afl lengur.

„Ansi mikil gúrku­tíð á Mogganum! En auð­vitað er mun lík­legra að þetta sé FFH (UFO) eða eitt­hvað þess háttar en eitt­hvað svo óskáld­legt og prósa­ískt eins og þeir halda: end­ur­speglun á linsu. Aldrei má neitt vera dul­ar­fullt og yfir­nátt­úru­legt í friði. Svo dettur þeim auðv ekki í hug að þetta gætu verið linsu­ljós frá huldu­fólk­inu sem dal­ur­inn er ugg­laus fullur af. Hafa blaða­menn ekk­ert hug­ar­flug lengur?“

Til gam­ans má geta að téð frétt er þegar þetta er skrifað níunda mest lesna fréttin á mbl.is í dag, þannig að ein­hverjir hafa þó áhuga á henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

5
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Russell Brand dæmdur í tíu og hálfs árs fang­elsi

Brotin áttu sér stað á fimm ára tímabili þegar ferill Russells Brand stóð sem hæst á fyrsta áratug aldarinnar.
Landið

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Peningar

Fyr­ir­tæki sem eig­in­maður Kristrúnar á hlut í orðið gjald­þrota

Heimur

Þrjár háskóla­stúlkur sak­aðar um kyn­þátta­for­dóma eftir að upp­taka fór á flug á net­inu

Heimur

Gefur and­virði 300 ára gam­als ætt­ar­óð­als til barna á Gaza

Innlent

Innlent

Mat­vöru­verð hækkar þrátt fyrir boð­aðar verð­lækk­anir

Dagvöruvísitala ASÍ hækkaði um 0,33 prósent frá ágúst til nóvember. Hækkanir á kjöti og mjólkurvörum vógu þyngst.
Innlent

„Það er alls ekki hryðju­verk að hleypa dýrum út“

Innlent

„Þessi fámenni, fúl­lyndi hópur öskrar hærra en venju­legt full­orðið fólk“

Innlent

„Tími und­an­þága og fresta í svína­haldi er lið­inn“

Innlent

Erlendir ferða­menn í bílnum sem lenti í Kleifá

Innlent

Tveir rot­uðu mann í miðbæ Reykja­víkur