Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Örn Guðmundsson ráðinn framkvæmdastjóri Háskóla Íslands

Fyrr­ver­andi for­stjóri Mannvits og COWI ráð­inn fram­kvæmda­stjóri HÍ

Örn Guðmundsson ráðinn framkvæmdastjóri Háskóla Íslands
Örn Guð­munds­son færir 25 ára stjórn­un­ar­reynslu yfir til Háskóla Íslands Mynd: Kristinn Ingvarsson

Örn Guð­munds­son hefur verið ráð­inn í starf fram­kvæmda­stjóra Háskóla Íslands (HÍ) og hefur hann þegar hafið störf. Örn tekur við kefl­inu af Guðmundi Ragnari Jónssyni, sem lætur af störfum sökum ald­urs eftir ára­mót. Til að tryggja hnökra­lausa yfir­færslu á hinu umfangs­mikla og flókna hlut­verki munu þeir starfa saman næstu mán­uði.

Viðamikil reynsla úr atvinnulífinu

Örn býr yfir 25 ára reynslu af stjórn­unar- og leið­toga­störfum innan stórra skipu­lags­heilda. Hann var fram­kvæmda­stjóri COWI Ísland ehf. á árunum 2023–2024 og þar á undan fram­kvæmda­stjóri Mannvits hf. árin 2018–2023, þar sem hann gegndi einnig starfi fjár­mála­stjóra árin 2015–2018. Þá var hann aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri hjá Kaup­þingi hf. á árunum 2009–2015.

Samhliða þessu situr Örn í banka­ráði Lands­bank­ans, þar sem hann hefur stýrt end­ur­skoð­unar- og áhættu­nefndum, og er stjórn­ar­for­maður Almenn­ings­sam­gangna höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins ohf. Hann útskrif­að­ist með Cand.oecon. próf frá Háskóla Íslands árið 1996 og lauk meistara­gráðu í alþjóða­við­skiptum frá Copenhagen Business School árið 1998.

Leiðir fjögur stór stoðsvið skólans

Í starfi sínu sem fram­kvæmda­stjóri mun Örn leiða hluta sam­eig­in­legrar stjórn­sýslu HÍ í umboði rekt­ors. Undir verk­svið hans heyrir yfir­um­sjón með fjórum lyk­ilsviðum:

  • Fjár­mála­sviði
  • Fram­kvæmda- og tækni­sviði
  • Mannauðs­sviði
  • Upp­lýs­inga­tækni­sviði

Hlakka til samstarfsins

Silja Bára R. Ómars­dóttir, rektor Háskóla Íslands, fagnar ráðn­ing­unni og segir skól­ann hepp­inn að fá jafn reynslu­mik­inn stjórn­anda til liðs við sig. „Ég hlakka til að vinna með Erni að því að styrkja rekstur háskól­ans og gera góðan vinnu­stað enn betri,“ segir Silja Bára.

Örn segir það mik­inn heiður að ganga til liðs við skól­ann. „Ég hlakka til að kynn­ast öfl­ugu starfs­fólki skól­ans og vinna með því að áfram­hald­andi þróun skól­ans, traustum rekstri og góðri þjón­ustu við háskóla­sam­fé­lagið,“ segir Örn af þessu til­efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi