Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég hef alltaf hugsað lífið sem tískusýningu“

Fata­hönn­uð­ur­inn Tinna Rún greinir vænt­an­lega haust og vetr­ar­tísku

„Ég hef alltaf hugsað lífið sem tískusýningu“
Tinna Rún Jón­as­dóttir Er fyr­ir­sæta og fata­hönn­uður Mynd: Norly Macan

Fata­hönn­uð­ur­inn Tinna Rún Jón­as­dóttir telur að feldir, áber­andi yfir­hafnir og per­sónu­legur klæða­burður verði áber­andi í tísk­unni hér á landi í haust og vetur en Mannlíf hafði sam­band við hana til að spyrja hana út í tísku næstu mán­uða.

Hún segir jafn­framt að ein­fald­ari og svo­kall­aður „basic“ klæða­burður kunni að vera á und­an­haldi.

Tinna segir feld­inn vera að sækja veru­lega í sig veðrið og telur að hann muni sjást í ýmsum myndum á næstu mán­uðum, meðal ann­ars í yfir­höfnum, húfum og töskum.

„Allir eru að prófa sig áfram í eigin tísku og ég er að fíla það. Tískan er orðin miklu meira per­sónu­legri núna,“ segir Tinna.

Hún telur að þegar kólna taki í veðri verði yfir­hafnir mik­il­væg leið fyrir fólk til að tjá per­sónu­legan stíl sinn. Í stað hefð­bund­inna og lát­lausra úlpa eigi skemmti­legar og áber­andi yfir­hafnir eftir að verða meira áber­andi.

„Ég hef alltaf hugsað lífið sem tísku­sýn­ingu. Það þarf aldrei að vera neitt til­efni til þess að klæða sig upp eða vera í fínum og flottum flíkum,“ segir hún.

Vill sjá meiri lit og áræðni

Tinna telur að svo­kall­aður „basic“ stíll sé að ein­hverju leyti á útleið. Hún segir þó nauð­syn­legt að eiga ein­faldar grunn­flíkur en hvetur fólk til að para þær saman við meira áber­andi fatnað.

Hún seg­ist sér­stak­lega vilja sjá meiri lit í íslenskri vetr­ar­tísku.

„Ég vil sjá meira af lit­ríkum flíkum, helst bara allan regn­bog­ann. Það væri svo æðis­legt í þessum bless­aða kulda og allri þess­ari dimmu,“ segir Tinna.

Að hennar mati mætti fólk jafn­framt taka meiri áhættu í klæða­burði. Flíkur og fylgi­hlutir þurfi ekki alltaf að passa saman með hefð­bundnum hætti og óvæntar sam­setn­ingar geti gefið klæðn­að­inum meiri karakter.

Notaðar flíkur í uppáhaldi

End­ur­nýt­ing skipar stóran sess í sýn Tinnu á tísku og end­ur­spegl­ast það í fata­hönnun hennar hjá LÖKKŸ. Þar leggur hún áherslu á að nýta eldri og not­aðar flíkur og umbreyta þeim í ein­stök ein­tök.

Sjálf seg­ist hún helst versla í Góða hirð­inum og versl­unum Rauða kross­ins.

„Það er svo miklu skemmti­legra að labba inn í búð og þú veist ekk­ert hvað bíður þín. Það er hægt að finna svo áhuga­verða og skrýtna hluti þar,“ segir hún.

Tinna seg­ist nú kaupa til­tölu­lega lítið af fötum enda eigi hún mikið fyrir. Þegar hún kaupi sér fatnað verði not­aðar flíkur þó oft­ast fyrir val­inu. Það sem heilli við slíkan fatnað sé meðal ann­ars mögu­leik­inn á að breyta flík­unum og gefa þeim nýtt líf.

„Tíska fyrir mér snýst ekk­ert endi­lega um það nýjasta heldur frekar að finna skap­andi leiðir til þess að segja hver maður er án þess að segja neitt,“ segir Tinna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu