Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Illugi Jökulsson óttast um stöðu Íslands

„Yrðum eins og kræki­ber í hel­víti“

Illugi Jökulsson óttast um stöðu Íslands
Illugi Jök­uls­son spáir hruni EES-samn­ings­ins og hrað­ferð Norð­manna inn í ESB

Rit­höf­und­ur­inn og fjöl­miðla­mað­ur­inn Illugi Jök­uls­son telur að Íslend­ingar eigi taf­ar­laust að kanna grund­völl fyrir eigin aðild­ar­samn­ingi við Evr­ópu­sam­bandið (ESB). Hann ótt­ast að breytt heims­mynd og vax­andi yfir­gangur Banda­ríkj­anna muni knýja nágranna­þjóðir okkar til að leita nær ESB, sem gæti skilið Ísland eftir í algjörri ein­angrun.

Þetta kemur fram í færslu á Illuga þar sem hann lýsir yfir þungum áhyggjum af þróun alþjóða­mála.

Treysta ekki lengur Bandaríkjunum

Illugi bendir á að fram­koma Banda­ríkj­anna gagn­vart nágranna­þjóðum okkar sé farin að breyta póli­tísku lands­lagi á Norð­ur­löndum og í Norður-Ameríku. „Hótanir og yfir­gangur Banda­ríkj­anna í garð Græn­lands eru eitt. Kröfur Banda­ríkj­anna um að þau fái að ráða inn­lands­málum í Kanada eru annað,“ skrifar Illugi og full­yrðir að Atl­ants­hafs­banda­lagið (NATÓ) hafi veikst stór­lega. „Engin þjóð getur lengur treyst Banda­ríkj­unum.“

Hann bætir því við að þetta ástand muni ekki breyt­ast að neinu ráði þó að Donald Trump láti á end­anum af emb­ætti.

Spáir hraðferð Noregs inn í ESB

Að mati Illuga eru stjórn­völd í Kanada og Noregi með­vituð um þessa nýju stöðu. Kanada­menn vilji nú ná miklu nán­ari tengslum við Evr­ópu­sam­bandið og sömu sögu sé að segja af Norð­mönnum, sem sjái fram á að geta ekki treyst á Banda­ríkin til að verja sig gegn Rússum og Kín­verjum.

„Það er alveg deg­inum ljós­ara að innan örfárra miss­era mun hefj­ast í Noregi sterk hreyf­ing fyrir því að ganga í Evr­ópu­sam­bandið,“ skrifar Illugi og telur að Norðmenn gætu farið „sann­kall­aða hrað­ferð“ inn í sam­bandið.

EES-samningurinn gæti fallið úr gildi

Verði sú sviðs­mynd að veru­leika að Noregur gangi í ESB, telur Illugi að staða Íslands verði mjög veik og að Evrópska efna­hags­svæðið (EES) muni líða undir lok.

„Þá yrðum við eins og kræki­ber í hel­víti, EES-samn­ing­ur­inn félli úr gildi og við yrðum að lúp­ast inn í Evr­ópu­sam­bandið á frakka­löfum Norð­manna,“ segir Illugi.

Hann lýkur færslu sinni á þeirri spurn­ingu hvort ekki sé skyn­sam­legra fyrir Íslend­inga að grípa frum­kvæðið á meðan staða lands­ins er sterk: „Væri ekki miklu skyn­sam­legra — nú þegar við erum í mun sterk­ari stöðu — að kanna hvað gæti komið út úr okkar eigin aðild­ar­samn­ingi?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi