Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

„Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt“

„Það eru engin prinsipp, það eru engar hugsjónir“

Katrín Oddsdóttir, lögfræðingur
Katrín Odds­dóttir, lög­fræð­ingur segir fyr­ir­sögn um hval­veiðar sýna tæki­fær­is­mennsku stjórn­mála­stétt­ar­innar Mynd: Réttur

Afstaða þeirra þingmanna sem sátu fyrir svörum í Pall­borðinu á Vísi á fimmtudaginn, hefur vakið athygli þar sem enginn þeirra lýsti sig andvígan hval­veiðum. Málið er ákaflega umdeilt, en Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvega­ráðherra hefur boðað frumvarp um breytingar á fyrir­komulagi veiðanna í haust og lýst því yfir að hennar persónu­lega skoðun sé sú að tímabært sé að hætta þeim. Þingmenn á vinstri og hægri vængnum, sem og úr miðju­flokkum, sýndu ýmist eindreginn stuðning eða gættu þess að taka ekki afgerandi afstöðu gegn veiðunum. Meðal þeirra sem vöktu athygli fyrir varkárni voru þingmenn Viðreisnar, Flokks fólksins og Samfylkingarinnar, sem sögðust annað hvort óákveðnir eða vilja sjá frum­varpið áður en afstaða væri tekin.

Minna á fræg orð Styrmis Gunnarssonar

Viðbrögð þing­mannanna hafa mætt harðri gagnrýni úr röðum dýra- og náttúru­verndar­sinna. Katrín Odds­dóttir lögfræðingur lýsti yfir þungum áhyggjum af þróun mála í opinberri færslu og sagði fyrir­sagnir eins og „Enginn andvígur hval­veiðum“ minna sig óþægilega á fræg orð Styrmis Gunnars­sonar, fyrr­verandi ritstjóra Morgun­blaðsins, sem hann lét falla fyrir rann­sóknarnefnd Alþingis eftir hrun. Katrín rifjar upp harðorða greiningu Styrmis á íslenskri valda­stétt og vitnar beint í orð hans:

„Ég er búinn að fylgjast með þessu þjóð­félagi í 50 ár. Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hugsjónir, það er ekki neitt. Það er bara tækifæris­mennska, valda­barátta.“

Subbuleg alhæfing sem á því miður við

Katrín viðurkennir að tilvitnunin sé hörð, en segir að pólitískt landslag dagsins í dag kalli fram þessar hugsanir. „Þó þetta sé kannski subbuleg alhæfing um stjórnmála­stéttina þá fá fyrir­sagnir eins og þessi mig til þess að minnast þessara orða – og það er farið að gerast óþægilega oft þessa dagana,“ segir Katrín í færslu sinni.

Ljóst er að hvalveiði­málið verður eitt af stóru bitbeinum Alþingis í vetur þegar frumvarp ráðherra lítur dagsins ljós, en miðað við yfir­lýsingar þingmanna í Pall­borðinu virðist andstaðan inni á þingi vera mun minni en tónninn í samfélags­umræðunni og mótmælum undan­farinna ára gefur tilefni til að ætla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi