Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Skoðun

Ég fór til vinnu – ekki til að missa heils­una

Pólitík

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

Fólk

Líf á mörkum friðar og átaka

Heimur

Alanis Moris­sette kemur út sem pankyn­hneigð

Minning

Sæmi Rokk er fall­inn frá

Heimur

Jessica Delfino segir Russell Brand hafa ítrekað boðið sér heim til sín

Innlent

„Það er alls ekki hryðju­verk að hleypa dýrum út“

Frétt

„Vændi snýst um sam­fé­lagið í heild“

Heimur

Stakk nágranna sinn í brjóstið eftir deilur um lausan hund

Brasilíubúinn Hannes sakar Egil um litla þjóðrækni

„Þeim mun fleiri fánar, þeim mun verra sam­fé­lag“

Brasilíubúinn Hannes sakar Egil um litla þjóðrækni
Hannes með vinum sínum í Brasilíu Hannes segir Egil elska öll lönd nema sitt eigið Mynd: Hannes Hólmsteinn Gissurarson/Facebook

Miklar deilur hafa sprottið upp á sam­fé­lags­miðlum og í fjöl­miðlum í kjöl­far ummæla Egils Helga­sonar, sjón­varps­manns og sam­fé­lags­rýnis, um notkun þjóð­fána. Ummælin, sem Egill setti fram sem almenna reglu, hafa vakið hörð við­brögð þar sem hann er sak­aður um andúð á íslenskum gildum, á meðan aðrir benda á ára­tuga­starf hans í þágu íslenskrar menn­ingar sem svar við gagn­rýn­inni.

„Þeim mun fleiri fánar, þeim mun verra samfélag“

Kveikjan að umræð­unni voru við­brögð Egils við frétt um gríð­ar­lega aukn­ingu á sölu fánastanga hér á landi, í kjöl­far laga­breyt­ingar sem leyfði fólki að flagga allan sól­ar­hring­inn yfir sum­ar­tím­ann. Egill skrif­aði:

„Þum­al­putta­regla mín er svona: Þeim mun færri fánar, þeim mun betra sam­fé­lag. Eða: Þeim mun fleiri fánar, þeim mun verra sam­fé­lag. (Og það á eig­in­lega við um alla fána.)“

Hannes sakar Egil um að elska öll lönd nema sitt eigið

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, pró­fessor emeritus, brást hart við skrifum Egils og sagði hann til­heyra hópi mennta­manna sem horfi fram hjá gildum eigin föð­ur­lands.

„Egill Helgason er einn þeirra mennta­manna sem elska öll lönd nema sitt eigið og telja mestu máli skipta að geta talað frönsku. Þess vegna er hann á móti íslenska fán­anum,“ skrif­aði Hannes.

Hann benti á Danmörku sem dæmi um gott land þar sem Dannebrog blakti við flest tæki­færi og sagði fán­ann tákn um ell­efu hund­ruð ára lífs­bar­áttu og sam­stöðu Íslend­inga í gegnum nátt­úru­ham­farir og harð­indi.

Vekja ummæli Hannesar sér­staka athygli vegna þess að hann býr stóran hluta árs­ins í Brasilíu.

Viðskiptablaðið tengir ummælin við ESB-ósigur

Pistla­höf­und­ur­inn Týr á Við­skipta­blað­inu gerði málið sömu­leiðis að umtals­efni og setti skrif Egils í póli­tískt sam­hengi við nið­ur­stöður þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um Evr­ópu­sam­bandið. Týr full­yrti að ummælin end­ur­spegl­uðu erf­ið­leika Já-sinna við að sætta sig við lýð­ræð­is­lega nið­ur­stöðu.

„Lýðræði virð­ist fyrir sumum helst fel­ast í því að hafa vit fyrir öðrum lands­mönnum og verða síðan sár þegar þeir dirfast að hlusta ekki alfarið á þeirra visku,“ skrif­aði Týr og bætti við að það væri tæp­lega væn­legt til árang­urs að láta í veðri vaka að þeir sem væru ósam­mála væru verr upp­lýstir eða ekki nógu alþjóð­lega þenkj­andi.

Varinn sem ötull talsmaður íslensks menningararfs

Varla er hægt að saka Egil um skort á rækt­ar­semi við land og þjóð, enda hefur hann um ára­tuga­skeið verið einn áhrifa­mesti tals­maður íslenskrar menn­ingar, sögu og bók­mennta.

Þar má nefna lang­lífa menn­ing­ar­þætti hans á borð við bók­mennta­þátt­inn Kiljuna og aðra vand­aða sögu­skýr­inga­þætti á íslenskri menn­ingu.

Ljóst er að ummæli Egils hafa snert við­kvæman streng og afhjúpað ólíkar áherslur í sam­fé­lag­inu, ann­ars vegar áhyggjur af vax­andi þjóð­ern­is­hyggju og hins vegar ríka þörf fyrir sam­stöðu undir þjóð­legum táknum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendir ferða­menn í bílnum sem lenti í Kleifá

Straumurinn bar bílinn í gegnum ræsi og þurfti að draga hann úr ánni áður en hægt var að ná öðrum ferðamanninum út.
Heimur

Ungur maður lést í umferð­ar­slysi á Kanarí­eyjum

Heimur

Fyrsti dagur Brands í Wandsworth-fang­els­inu sagður nið­ur­lægj­andi

Heimur

Huckabee segir Satan stjórna and­stæð­ingum Íran­stríðs­ins

Heimur

Ísra­elskur sjón­varps­maður lát­inn víkja eftir rasísk ummæli

Innlent

Innlent

Kristrún segir ekki þörf á fastri við­veru banda­rísks her­liðs á Íslandi

„Sambandið hefur breyst síðan þá. Við berum nú meiri ábyrgð sjálf og mér finnst það hafa gengið vel“
Innlent

Einar Logi birtir mynd­band úr inn­broti sínu hjá Stjörnu­grís

Innlent

Tveir rot­uðu mann í miðbæ Reykja­víkur

Innlent

Ökumaður ók á tvo ljósastaura og umferð­ar­eyju

Innlent

Brennu­varg­arnir í Sorpu komnir aftur á stjá

Innlent

MAST segir að aðgerðir vegna dýra­vel­ferðar megi ekki auka þján­ingar dýra