Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

Reynir Pétur var fjög­urra mán­aða þegar hann veikt­ist af heila­himnu­bólgu

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

Reynir Pétur Stein­unn­ar­son vakti athygli land­ans árið 1985 þegar hann gekk hring­inn í kringum landið meðal ann­ars til að vekja athygli á mál­efnum fatl­aðra og safna fyrir bygg­ingu nýs íþrótta­húss að Sól­heimum. Reynir Pétur fædd­ist heil­brigður en fékk heila­himnu­bólgu nokk­urra mán­aða gam­all og tæp­lega fjög­urra ára flutti hann á Sólheima þar sem hann hefur búið síðan. Hann talar í við­tali við Mannlíf meðal ann­ars um æsk­una, lífið á Sól­heimum, göng­una, fálka­orð­una og dauð­ann. Hér fyrir neðan má sjá brot úr við­tal­inu.

Boð og bönn

Það var haustið 1948 sem Reynir Pétur kom í heim­inn í Reykja­vík.

„Bíddu róleg. Nú skulum við athuga svo þú vissir um sög­una mína áður. Ég fékk heila­himnu­bólgu þegar ég var lít­ill. Ég var þriggja fjög­urra mán­aða. Ég var baby. Veikin virðir ekki landa­mæri. Svo kom heim­ild­ar­mynd um mig 2010 og það var við­tal við Gunnu, systur mína. Þá komst ég að því að ég fædd­ist heil­brigður. Heil­brigt barn. Fínt barn. Svo bara varð hann veikur. Mjög veikur. Upp úr því verður þrosk­inn svo­lítið öðru­vísi. Þetta var stór heilli,“ segir hann og á við fyrr­nefnt við­tal við systur sína, „en þá vissi ég að ég var algjör­lega í lagi þegar ég fædd­ist. Og ef ég hefði verið í lagi, ekki veikst, alist upp í bænum kannski, hitt konu og eign­ast börn. En æi, það kom bara veiki. Enda tók veikin mörg börn undir sig. Af hverju? Þetta var far­aldur. Þetta er eins og flensa. Kíghósti. Nefndu það. Þetta flyst á milli landa. Ég veit ekki hver fjand­inn það er. Bara óheppni má segja. Ég spurði svo systur mína hversu veikur ég var. Ég hélt ég hefði verið smá veikur. Nei. Hún sagði: „Þú varst mjög veikur. Þú varst næstum því far­inn.“ Svo ég hugs­aði ég slapp samt vel. Kem hingað og alist upp hér. Ég kem ekki fyrr en hvað þriggja ára. Ég var að verða fjög­urra ára. Þá var Sesselja for­stöðu­kona en hún gat verið svaka­lega ströng. Ég spurði einu sinni systur mína hvort hún vissi hvort for­eldrar mínir reyndu að spyrja Sesselju að fá dreng­inn yfir helgi. Já. Það var reynt. Og hún neit­aði.“

Reynir Pétur á stóra fjöl­skyldu sem er dug­leg að heim­sækja hann, bjóða honum heim og fara í bílt­úra með hann en hálf­systk­inin eru sjö. Reynir Pétur er spurður um æskuminn­ingar.

„Ég hafði gaman af mörgu. Það voru kringlótt tæki úti í geimnum eins og kúlu­bolt­inn minn. Þetta var svona bolti með hring utan um og það voru margir gluggar á þessu. Þetta var á fjórum fótum,“ segir hann og á við geim­far. „Þetta var alveg meiri­háttar,“ segir hann með áherslu. „Og ég hafði gaman af mörgu. Ég hafði gaman af fánum. Ég hafði gaman af músík. Ég hafði gaman af mörgum hlutum. Ég var með alls konar hug­mynda­flæði. Ég ólst upp á Sól­heimum en auð­vitað voru stundum þrösk­uldar sem maður steig á. Sem maður steig á gler­broti. Það voru boð og bönn og þú áttir að fara eftir reglum og ef þú gerir ekki svona þá færðu skammir. Og allt eftir göt­unum. Þú þurftir að fara eftir reglum. En ég fann ekki mikið fyrir því af því að ég var svo bissí af áhuga­málum. Hefði ég ekki verið með áhuga­mál þá hefði ég verið að spá í spilin. Ég var bara bissí sem betur fer. En ann­ars hafa Sól­heimar gefið mér mikla ferska minn­ingu. Ég fór oft í göngut­úra í gamla daga. Þá var skylda að fara út. Það var farið með börnin út að labba. Og ég lenti í því að vera sem eitt af börn­unum. Þetta var skylda.“

Voru mörg börn á Sól­heimum á þessum tíma?

„Já já. Ég man ekki hvað þau voru mörg en það var svo­lítið góður slatti af börnum. Hefur hangið yfir svona þrjá­tíu manns með öllu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu