Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Smyglaði sér inn um þakglugga og stal síðan fjalli af áfengi

Smyglaði sér inn um þakglugga og stal síðan fjalli af áfengi
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur Mynd: BHJ

Fertugur Reyk­vík­ingur hefur verið dæmdur í fimm mán­aða óskil­orðs­bundið fang­elsi fyrir sex þjófn­að­ar­brot og fíkni­efna­laga­brot. Meðal þess sem mað­ur­inn stal voru reið­hjól, far­tölvur, verk­færi, lamba­kjöt, sæl­gæti og mikið magn áfengis.

Dómur var kveð­inn upp í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur 22. októ­ber en mað­ur­inn ját­aði brot sín ský­laust. Brotin voru framin frá apríl 2025 til febr­úar á þessu ári.

Fyrsta brotið var framið 7. apríl 2025 þegar mað­ur­inn fór inn í stiga­gang fjöl­býl­is­húss í Reykja­vík og stal rauðu Cannondale-reið­hjóli. Í ágúst sama ár fór hann ásamt öðrum manni inn um þak­glugga snyrti­stofu í Reykja­vík og stal þar 6.500 krónum í reiðufé, Apple-far­tölvu, örygg­is­kassa og snyrti­vörum.

Í októ­ber stal hann síðan sæl­gæti að verð­mæti 1.435 krónur úr verslun Krón­unnar.

Stálu miklu magni áfengis úr skipi

Um miðjan októ­ber 2025 fór fer­tugi Reyk­vík­ing­ur­inn ásamt öðrum aðila inn í skip í Reykja­vík. Þar stálu þeir miklu magni áfengis ásamt fatn­aði og tölvu.

Áfengið sem tekið var var fjórar eins lítra flöskur af Jack Daniels, tvær eins lítra flöskur af Jagermeister, fjórar eins lítra flöskur af Fin­landia, fimm eins lítra flöskur af Beefeater, fjórar 750 milli­lítra flöskur af Boutinot-hvítvíni, ein 700 milli­lítra flaska og tvær eins lítra flöskur af Bombay-gini, tíu eins lítra flöskur af Captain Morgan Spiced, níu 700 milli­lítra flöskur og tutt­ugu 250 milli­lítra flöskur af Jökla-róma­líkjör, sjö eins lítra flöskur af Jameson og ein 750 milli­lítra flaska af Campo Viejo Rioja Tempranillo-rauð­víni.

Einnig var stolið Pata­gonia-bak­poka, Pata­gonia-peysu og Lenovo ThinkPad-far­tölvu. Heild­ar­verð­mæti þýf­is­ins úr skip­inu var 699.051 króna.

Skömmu síðar fann lög­regla 1,58 grömm af amfetamíni á mann­inum við örygg­is­leit á lög­reglu­stöð­inni við Hverf­is­götu.

Hafði nýlega lokið meðferð

Í nóv­em­ber 2025 stal mað­ur­inn verk­færa­kassa úr geymslu fjöl­býl­is­húss og í febr­úar á þessu ári stal hann lamba­fram­hrygg að verð­mæti 3.494 krónur úr Nettó.

Maðurinn á saka­feril að baki sem nær aftur til árs­ins 2002 og hefur áður verið dæmdur meðal ann­ars fyrir þjófn­aði, fjár­svik og fíkni­efna­laga­brot. Við ákvörðun refs­ingar leit dóm­ur­inn þó til þess að hann ját­aði brotin ský­laust. Þá kom fram hjá verj­anda hans að mað­ur­inn hefði nýlega lokið með­ferð og snúið lífi sínu til betri vegar.

Dómurinn taldi saka­feril hans hins vegar standa því í vegi að refs­ingin yrði skil­orðs­bundin. Hann var því dæmdur í fimm mán­aða fang­elsi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Innlent

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina