Kristrún Frostadóttir
„Það verður að virða fullveldi og alþjóðalög“
Kristrún Frostadóttir
Minning

Gunnar Þór­ar­ins­son fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi lát­inn

Heimur

Nýjar nið­ur­stöður varpa ljósi á orsakir millj­óna krabba­meinstil­fella

Fólk

Hvenær verður daður að fram­hjá­haldi?

Innlent

Hekla inn­kallar til­tekna Audi-, Volkswagen- og Skoda-bíla

Heimur

Verkfall á Kanarí­eyjum getur raskað ferðum til og frá flug­völlum

Heimur

Ísra­elskir ferða­menn gagn­rýndir eftir að leið­sögu­manni var ýtt í sjó­inn

Peningar

Segir hluta­fjár­út­boð Bláa lóns­ins ótíma­bært vegna eldsum­brota

Innlent

Varað við neyslu á wasabi-hrískexi

Heimur

Katta­eig­endur sér­stak­lega varaðir við hættu­legri fuglaflensu

Heimur

Kim Kar­dashian neyð­ist til að end­ur­greiða við­skipta­vinum

Ók á 193 kílómetra hraða og farþegi hlaut alvarlegan heilaskaða

Lá tæpan mánuð á gjör­gæslu og glímir við alvar­legar afleið­ingar slyss­ins

Héraðsdómur Norðurlands vestra sá um málið
Hér­aðs­dómur Norð­ur­lands vestra sá um málið Mynd: Skjáskot/ja.is

Tæplega 18 ára öku­maður hefur verið dæmdur í fimm mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir stór­hættu­legan glæfra­akstur á Siglu­fjarð­ar­vegi í Skaga­firði. Hann ók á allt að 193 kíló­metra hraða þar sem hámarks­hraði var 90 og missti stjórn á bif­reið­inni með þeim afleið­ingum að far­þegar slös­uð­ust, einn þeirra mjög alvar­lega.

Dómur féll í Hér­aðs­dómi Norð­ur­lands vestra í dag. Atvikið varð að kvöldi 11. apríl 2025. Bif­reiðin fór yfir á öfugan veg­ar­helm­ing, út af veg­inum og valt þrisvar til fjórum sinnum.

Fjórir voru í bif­reið­inni. Einn far­þeg­anna hlaut meðal ann­ars dreifðan heilaskaða, blóð í heila­hólfum og lungna­mar. Hann lá tæpan mánuð á gjör­gæslu og glímir við alvar­legar afleið­ingar slyss­ins. Annar far­þegi hlaut meðal ann­ars brot í háls og brjóst­hrygg.

Rannsókn lög­reglu leiddi í ljós að raun­hraði bif­reið­ar­innar rétt fyrir slysið var á bil­inu 180 til 193 kíló­metrar á klukku­stund. Myndbönd sem tekin voru á Snapchat inni í bif­reið­inni sýndu einnig hraða­mæl­inn í um 190 kíló­metrum á klukku­stund.

Ástand bif­reið­ar­innar var jafn­framt mjög slæmt. Hjól­barðar voru gamlir og morknir, hemlar í afar lélegu ástandi og veru­leg tær­ing var í burð­ar­virki. Að mati bif­véla­virkja hefði bif­reiðin ekki átt að vera í umferð.

Dómurinn taldi akst­ur­inn stór­hættu­legan og víta­verðan. Öku­mað­ur­inn ját­aði brot sitt og hafði hreint saka­vott­orð. Fang­els­is­refs­ingin var skil­orðs­bundin til tveggja ára og var hann sviptur öku­rétt­indum í tólf mán­uði. Þá var honum gert að greiða alvar­lega slas­aða far­þeg­anum 3,5 millj­ónir króna í miska­bætur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Minning

„Og nú er hann flog­inn á braut í morg­un­birt­unni, dáinn, horf­inn, harma­fregn“

Vinir minnast Marðar Árnasonar með hlýju
Innlent

Þarf að greiða 834 þús­und eftir tap í máli gegn gisti­stað

Heimur

Bretland hvatt til að hraða und­ir­bún­ingi fyrir hugs­an­legt stríð

Heimur

Gam­an­leik­kona upp­lýsti Guardian um ásak­anir á hendur David Walliams

Heimur

Net­anyahu sak­aður um að nota kyn­þátta­hatur sem síð­asta tromp í valda­bar­átt­unn

Innlent

Innlent

Inn­köllun vegna eld­hættu í þremur teg­undum Volkswagen-raf­bíla

Eigendur hvattir til að hlaða bifreiðar sínar ekki umfram 80 prósent.
Innlent

Lang­tíma­spá bendir til þurr­ari vetrar á Íslandi

Innlent

Öskurapi í Vest­ur­bænum fannst ekki þrátt fyrir leit

Innlent

Krefjast opin­berrar afsök­un­ar­beiðni frá Morg­un­blað­inu

Innlent

Sonurinn áfram í gæslu­varð­haldi vegna mann­dráps í Breið­holti

Innlent

Mat­vöru­verð hækkar þrátt fyrir boð­aðar verð­lækk­anir