Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

„Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki út með skít og skömm?“

Helga Vala gagn­rýnir fram­komu við starfs­fólk Reykja­vík­ur­borgar

Hildur Björnsdóttir
Hildur Björns­dóttir Borg­ar­stjór­inn fær að finna til tevatns­ins í færslu Helgu Völu Mynd: BHJ

Helga Vala Helga­dóttir, lög­maður og fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, gagn­rýnir harð­lega hvernig staðið var að upp­sögnum 50 starfs­manna Reykja­vík­ur­borgar. Hún spyr hvers vegna starfs­fólk fái ekki að vinna upp­sagn­ar­frest, kveðja sam­starfs­fólk og miðla þekk­ingu sinni til þeirra sem taka við verk­efn­unum.

Í færslu á Facebook veltir hún fyrir sér þró­un­inni á íslenskum vinnu­mark­aði og þeirri venju að starfs­fólki sé sagt upp með litlum fyr­ir­vara og það jafn­vel látið yfir­gefa vinnu­stað­inn sam­stundis.

„Eftir að hafa fylgst með upp­sögnum í ráð­hús­inu í gær spyr ég, hvað gerð­ist eig­in­lega á íslenskum vinnu­mark­aði? Af hverju þykir það eðli­legt að henda fólki, sem hefur ekki brotið af sér í starfi, út með skít og skömm?“ skrifar Helga Vala.

Hún gagn­rýnir sér­stak­lega að starfs­fólk sé kallað á fund án fyr­ir­vara, því sagt upp og því í kjöl­farið vísað úr húsi.

„Af hverju þykir það smart að kalla fólk inn á fund með engum fyr­ir­vara, segja því upp og um leið vísa því úr húsi,“ spyr hún.

Spyr hvers vegna fólk fái ekki að vinna uppsagnarfrestinn

Helga Vala segir einnig ástæðu til að velta því fyrir sér hvers vegna atvinnu­rek­endur kjósi að láta fólk hætta störfum sam­stundis í stað þess að leyfa því að vinna upp­sagn­ar­frest­inn.

„Hvers vegna þykir atvinnu­rek­endum ákjós­an­legt að fólk fái ekki að vinna upp­sagn­ar­frest, kveðja sam­starfs­fólk sitt og jafna sig á áfall­inu í sátt við vinnu­stað­inn í stað þess­arar fram­komu?“ skrifar hún.

Hún beinir jafn­framt sjónum að áhrifum þess­arar nálg­unar á starf­sem­ina sjálfa og spyr hvernig nýir starfs­menn eigi að taka við verk­efnum þegar þeir sem sinntu þeim hafa þegar verið látnir fara.

Segir þekkingu og reynslu geta farið forgörðum

Helga Vala bendir á að starfs­menn sem hafi sinnt sömu verk­efnum árum eða jafn­vel ára­tugum saman búi yfir verð­mætri þekk­ingu sem gæti nýst við að kynna verk­efnin fyrir arf­tökum sínum.

„Svo velti ég fyrir mér, hver setur nýja mann­eskju í verk­efnið, hvernig gengur það ef búið er að henda þeim sem vann verkið út.“

Hún spyr hvort slík fram­kvæmd leiði ekki til sóunar á tíma, orku og þekk­ingu, sér­stak­lega ef verk­efnin eigi að halda áfram eftir að starfs­menn­irnir hafa verið látnir fara.

„Er það ekki tíma/orku og þekk­ing­ar­sóun að nýta ekki þá sem sinnt hafa verk­efn­inu árum og jafn­vel ára­tugum saman, í að kynna verk­efnin fyrir arf­tak­anum, þ.e. ef yfir­menn ætla ekki að leggja öll verk­efnin niður?“ skrifar Helga Vala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

„Ég á betra skilið, allir innflytjendur eiga betra skilið og allir Íslendingar eiga betra skilið en þetta.“
  • Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

  • Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

  • „Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

  • Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi