Kristrún Frostadóttir
„Það verður að virða fullveldi og alþjóðalög“
Kristrún Frostadóttir
Peningar

Fyr­ir­tæki sem eig­in­maður Kristrúnar á hlut í orðið gjald­þrota

Innlent

Lang­tíma­spá bendir til þurr­ari vetrar á Íslandi

Heimur

Gefur and­virði 300 ára gam­als ætt­ar­óð­als til barna á Gaza

Heimur

Þrjár háskóla­stúlkur sak­aðar um kyn­þátta­for­dóma eftir að upp­taka fór á flug á net­inu

Innlent

„Þessi fámenni, fúl­lyndi hópur öskrar hærra en venju­legt full­orðið fólk“

Innlent

Krefjast opin­berrar afsök­un­ar­beiðni frá Morg­un­blað­inu

Landið

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Heimur

Gagn­rýnir hetju­dýrkun á Karl Bushby

Heimur

Ísra­elskur veð­ur­frétta­maður gerði grín að flóð­unum á Gaza

Innlent

„Tími und­an­þága og fresta í svína­haldi er lið­inn“

Andrés kærður vegna skrifa sinna um ESB

Er rit­stjórn­ar­full­trúi hjá Morg­un­blað­inu

Andrés Magnússon
Andrés Magn­ús­son Er einn þekkt­asti starfs­maður Morg­un­blaðs­ins Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Siða­nefnd Blaða­manna­fé­lags Íslands hefur vísað frá kæru Björns Inga L. Jóns­sonar á hendur Andrési Magn­ús­syni, ritstjón­ar­full­trúa Morg­un­blaðs­ins, vegna umfjöll­unar á mbl.is undir fyr­ir­sögn­inni „Fisk­veiði­stefna ESB ófrá­víkj­an­leg“.

Björn Ingi taldi að umfjöll­unin hefði falið í sér brot gegn 1., 2. og 6. grein siða­reglna Blaða­manna­fé­lags Íslands.

Sama dag kæran barst var Birni Inga bent á að aug­ljósir van­kantar væru á kærunni og honum gef­inn kostur á að bæta úr þeim í sam­ræmi við máls­með­ferð­ar­reglur siða­nefndar. Hann svar­aði ábend­ing­unum sam­dæg­urs en breytti kærunni ekki í sam­ræmi við þær.

Kæran laut að umfjöllun Andrésar um fisk­veiði­stefnu Evr­ópu­sam­bands­ins. Björn Ingi taldi að í frétt­inni hefði skoðun Rob Jetten, for­sæt­is­ráð­herra Hollands, um mögu­legar und­an­þágur eða sér­lausnir verið sett fram sem stað­reynd. Sagði hann orða­val blaða­manns­ins gefa til kynna að vís­vit­andi væri reynt að villa um fyrir opin­berri umræðu.

Siða­nefnd benti hins vegar á að ákveðin skil­yrði þurfi að vera upp­fyllt svo kæra verði tekin til efn­is­legrar með­ferðar. Meðal ann­ars þurfi kær­andi að hafa leitað leið­rétt­ingar hjá við­kom­andi fjöl­miðli og vera aðili máls eða hafa ríkra hags­muna að gæta.

Nefndin taldi vand­séð að Björn Ingi væri aðili máls­ins. Í svari sínu við ábend­ingum nefnd­ar­innar við­ur­kenndi hann jafn­framt að málið varð­aði hann ekki per­sónu­lega en sagði það varða upp­lýsta umræðu.

Björn Ingi kvaðst hafa sent blaða­mann­inum tölvu­póst en sá póstur fylgdi ekki kærunni. Hann taldi jafn­framt að krafa um að leita leið­rétt­ingar ætti aðeins við þegar skrif blaða­manna vörð­uðu við­kom­andi aðila með beinum hætti.

Siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að Björn Ingi upp­fyllti ekki máls­með­ferð­ar­reglur vegna kæra um meint brot á siða­reglum Blaða­manna­fé­lags Íslands.

Málinu var því vísað frá nefnd­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Landið

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Starfsmenn Matvælastofnunar og Náttúrustofu Austurlands leita dýrsins og biðja fólk að tilkynna hvar það sést, en ekki snerta það.
Innlent

Varað við neyslu á wasabi-hrískexi

Heimur

Katta­eig­endur sér­stak­lega varaðir við hættu­legri fuglaflensu

Innlent

Hekla inn­kallar til­tekna Audi-, Volkswagen- og Skoda-bíla

Heimur

Þríhliða við­ræður Rúss­lands, Úkraínu og Banda­ríkj­anna hafnar

Innlent

Innlent

Öskurapi í Vest­ur­bænum fannst ekki þrátt fyrir leit

Tilkynnt um ungmenni vegna afbrigðilegrar hegðunar við sundlaug í Hafnarfirði
Innlent

Tveir rot­uðu mann í miðbæ Reykja­víkur

Innlent

Sonurinn áfram í gæslu­varð­haldi vegna mann­dráps í Breið­holti

Innlent

Mat­vöru­verð hækkar þrátt fyrir boð­aðar verð­lækk­anir

Innlent

Erlendir ferða­menn í bílnum sem lenti í Kleifá

Innlent

Kristrún segir ekki þörf á fastri við­veru banda­rísks her­liðs á Íslandi