1
Peningar

Japis enn og aftur gjaldþrota

2
Innlent

Mollý nú löglegt á Íslandi

3
Minning

Margrét Jónsdóttir er fallin frá

4
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

5
Heimur

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul

6
Innlent

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl

7
Heimur

Ferðamaður lést á Kanarí

8
Heimur

Matt Brown látinn aðeins 43 ára gamall

9
Fólk

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu

10
Innlent

Innkalla hættulegar bílstólafestingar

Til baka

Bæjarstjóri Reykjanesbæjar gagnrýnir vöffluboð Sjálfstæðisflokksins

„Finnst fólki þetta viðeigandi?“

Kjartan Már Kjartansson
Kjartan Már KjartanssonBæjarstjórinn er ósáttur að vöfflukaffi Sjálfstæðisflokksins sé haldið í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju.
Mynd: Facebook

Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, er síður en svo sáttur við vöffluboð Sjálfstæðisflokksins í bænum, sem haldið verður fimmtudaginn 14 maí. Ástæðan er sú að viðburðurinn er haldinn í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju.

Kjartan Már, sem er var ópólitískt ráðinn, birti skjáskot í kvöld á Facebook af viðburðarboði á vöfflukaffið en þar var Keflavíkurkirkja í bakgrunni. Skrifaði bæjarstjórinn:

„Finnst fólki þetta viðeigandi?“

Í kjölfar færslunnar sköpuðust líflegar umræður en fjölmargir tjá sig í athugasemdakerfinu og má glöggt sjá að nokkurs kosningaskjálfta gætir í fólki.

Fjölmargir svara Kjartani bæjarstjóra á þá leið að þeim finnist þetta ekki í lagi, þar á meðal Sigrún nokkur sem skrifar: „100% nei!!! Annað hvort er fólk alveg gífurlega ómeðvitað og samfélagslega ólæst, eða að pólitíkin í Reykjanesbæ er meðvitað að taka afskaplega hættulegt skref! Og hvar ætti maður að byrja varðandi afstöðu og hlutverk kirkjunnar.“

Margrét nokkur tekur undir og skrifar: „Eru x-D ekki með kosningaskrifstofu sem þeir geta boðið fólki uppá kaffi og vöfflur?? Eða er búið að færa hana inni safnaðarheimilið. Hoppukastali í Akurskóla, party á Hótel Keflavík. Hvert fer kosningaskrifstofan næst. Já allt fallt fyrir peninga. Púff þetta gæti nú komið eins og búmmerang í fangið á ykkur hvað varðar atkvæðaveiðar.“

Ekki eru þó allir sammála en kosningastjóri Sjálfstæðsflokksins í Reykjanesbæ, Hermann Nökkvi Gunnarsson þakkar bæjarstjóranum fyrir að vekja athygli á viðburðinum og segir ekkert óeðlilegt við að hafa ljósmynd af vettvangi viðburðarins en þó hefur myndinni nú verið breytt og má nú aðeins sjá girnilegar vöfflur á viðburðinum. Hermann skrifaði:

„Það eru að sjálfsögðu allir velkomnir í safnaðarheimilið í vöfflukaffi. Ekki er óeðlilegt að mynd sé af vettvangi viðburðarins og síður en svo skrýtið að merki þeirra sem haldi viðburðinn komi fram í myndinni. Þetta er ekkert nýtt af nálinni. Engu að síður, ef þetta strýkur einhverja vitlaust, þá er búið að uppfæra myndina. Hvet alla til að mæta í vöfflukaffið á fimmtudaginn þar sem Guðjón Þorgils tekur lagið:) Takk fyrir að vekja athygli á viðburðinum.“

Kjartan Már svarar Hermanni um hæl: „Bæjarstjóranum er stórlega misboðið að kirkjan okkar sé “misnotuð” með þessum hætti.“

Ísak Ernir Kristjánsson, tengdasonur Bjarna Benediktssonar, tekur einnig upp hanskann fyrir Sjálfstæðisflokkinn í sinni athugasemd sem hljóðar eftirfarandi:

„Mjög eðlilegt! Flokkurinn tekur reglulega á leigu safnaðarheimili víða um land. Kirkjan er og verður stór partur af samfélaginu og húsakosti hennar á að nota.“

Gísli nokkur bætir síðan um betur og bendir á nokkur dæmi þar sem Samfylkingin hefur haldið viðburði í Laugarneskirkju og Akureyrarkirkju.

Gengið verður til sveitarstjórnakosningar laugardaginn 16 maí næstkomandi.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu auglýst laust til umsóknar
Innlent

Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu auglýst laust til umsóknar

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu fer með stjórn lögregluliðs í stærsta lögregluumdæminu
„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl
Innlent

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl

Mollý nú löglegt á Íslandi
Innlent

Mollý nú löglegt á Íslandi

Ofbeldisfullur lögreglumaður rekinn eftir rannsókn
Myndband
Heimur

Ofbeldisfullur lögreglumaður rekinn eftir rannsókn

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul
Heimur

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul

Hundar halda áfram að bíta fólk í Reykjavík
Innlent

Hundar halda áfram að bíta fólk í Reykjavík

Bjarndýr réðst á fólk inn í verksmiðju
Heimur

Bjarndýr réðst á fólk inn í verksmiðju

Innkalla hættulegar bílstólafestingar
Innlent

Innkalla hættulegar bílstólafestingar

Útlendingar mættu ekki fyrir dóm
Innlent

Útlendingar mættu ekki fyrir dóm

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu
Myndir
Fólk

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu

Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

Brynjar Níelsson opnar sig um eigin vinnumáta
„Ég tel að þessar breytingar verði til hagsbóta fyrir lögreglu“
Pólitík

„Ég tel að þessar breytingar verði til hagsbóta fyrir lögreglu“

Inga farin í veikindaleyfi
Pólitík

Inga farin í veikindaleyfi

Kamilla gagnrýnir niðurskurð á Þjóðarbókhlöðunni
Pólitík

Kamilla gagnrýnir niðurskurð á Þjóðarbókhlöðunni

Segir Morgunblaðið vera „málgagn hins neikvæða nöldurs”
Pólitík

Segir Morgunblaðið vera „málgagn hins neikvæða nöldurs”

Gylfi Ólafsson nýr bæjarstjóri Ísafjarðar
Pólitík

Gylfi Ólafsson nýr bæjarstjóri Ísafjarðar

Loka auglýsingu