Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Björn Leví kallar fyrirkomulag Sósíalistaflokksins „djöflasýru“

Segir meiri­hluta stjórnar ekki geta bannað fyr­ir­vara við árs­reikn­ing

Björn Leví Gunnarsson
Björn Leví Gunn­ars­son Björn Leví er harð­orður í færslu sinni um Sós­í­alista­flokk­inn

Björn Leví Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata, gagn­rýnir Sós­í­alista­flokk Íslands harð­lega vegna fréttar Morg­un­blaðs­ins um að trún­að­ar­ráð flokks­ins hafi mælt með því að Guðnýju Bene­dikts­dóttur verði vikið úr mið­stjórn fyrir meint brot á verk­lags­reglum um „lýð­ræð­is­lega mið­stýr­ingu.“

Í Facebook-færslu segir Björn Leví fyr­ir­komu­lagið „djöfla­sýru“ og dregur í efa að meiri­hluti stjórnar geti kraf­ist þess að aðrir stjórn­ar­menn fylgi ákvörð­unum hans í öllum til­vikum.

„Pælið aðeins í þess­ari djöfla­sýru (já, mér finnst það vera við­eig­andi orð til þess að lýsa þessu fyr­ir­komu­lagi),“ skrifar Björn Leví og vitnar í kjöl­farið í nokkrar athuga­semdir úr frétt­inni, til dæmis eft­ir­far­andi athuga­semd:

"verði vikið úr mið­stjórn flokks­ins fyrir brot á verk­lags­reglu um lýð­ræð­is­lega mið­stýr­ingu"

„Lýð­ræð­is­leg mið­stýr­ing? Hvað í fjand­anum er það," skrifar Björn Leví en í frétt Morg­un­blaðs­ins kemur fram að trún­að­ar­ráðið telji Guðnýju hafa brotið gegn reglum sem kveði á um að stjórn­ar­menn skuli ávallt fylgja ákvörð­unum meiri­hlut­ans. Málið verður tekið fyrir á fundi mið­stjórnar á fimmtu­dag­inn.

Samkvæmt frétt Morg­un­blaðs­ins neit­aði Guðný að und­ir­rita árs­reikn­ing flokks­ins án fyr­ir­vara. Núver­andi stjórn hefur ekki fengið skrán­ingu í fyr­ir­tækja­skrá vegna ágrein­ings um lög­mæti aðal­fund­ar­ins þar sem stjórnin var kjörin.

Í frétt­inni segir jafn­framt að hópur félags­manna telji fund­inn ekki hafa verið boð­aðan með lög­mætum hætti og að fram­kvæmda­stjórn hafi með óheim­ilum hætti skráð fólk úr flokknum og þannig svipt það atkvæð­is­rétti. Málið hafi verið kært til fyr­ir­tækja­skrár.

Segir meirihluta ekki geta stjórnað fyrirvara stjórnarmanns

Björn Leví bendir á að þótt eðli­legt geti verið að full­trúar fram­fylgi lýð­ræð­is­legum nið­ur­stöðum sé annað uppi á ten­ingnum þegar kemur að und­ir­ritun árs­reikn­ings.

„Þetta er ekki eitt­hvað sem meiri­hluti stjórnar getur með atkvæða­greiðslu ákveðið fyrir aðra stjórn­ar­menn,“ skrifar hann.

Hann segir það „ger­sam­lega fárán­legt“ að meiri­hluti stjórnar geti stjórnað ákvörðun ann­ars stjórn­ar­manns með þessum hætti og lýsir því sem þöggun á aðhalds­hlut­verki stjórn­ar­manna.

Björn Leví segir að fyr­ir­vari við und­ir­ritun árs­reikn­ings eigi að standa eða falla á eigin for­sendum. Það sé hins vegar frá­leitt að banna stjórn­ar­manni að gera slíkan fyr­ir­vara með vísan til atkvæða­greiðslu meiri­hluta stjórnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

„Ég á betra skilið, allir innflytjendur eiga betra skilið og allir Íslendingar eiga betra skilið en þetta.“
  • Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

  • Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

  • „Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

  • Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi