1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

4
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

5
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

6
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

7
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

8
Heimur

Áratugalöng leit endaði í faðmlagi systkina

9
Fólk

Gömul sál í nýjum búningi í Hafnarfirði til sölu

10
Innlent

Bruggaði ólöglega af krafti á Selfossi en lögreglan tæmdi lagerinn

Til baka

Dóra Björt húðskammar RÚV vegna fréttar

„Sjálfstæðisflokkurinn hefur alla tíð verið duglegur við að moka drullu inn í lokasprett kosningabaráttu.“

Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi
Dóra Björt GuðjónsdóttirDóra Björt er fokill út í RÚV

Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, gagnrýnir RÚV harðlega í nýrri Facebook-færslu og veltir þar upp hvort ríkisfjölmiðillinn sé í raun kominn í kosningabaráttu fyrir Sjálfstæðisflokkurinn.

Tilefnið er umfjöllun RÚV um svokallað bensínstöðvamálið aðeins sex dögum fyrir sveitarstjórnarkosningar.

„Það var eiginlega með ólíkindum að horfa á kvöldfréttir RÚV í fyrrakvöld. Sex dögum fyrir kosningar er bensínstöðvamálið blásið upp á ný, án þess að nokkuð nýtt hafi komið fram. Engin ný gögn. Engar nýjar ákvarðanir,“ skrifar Dóra Björt.

Hún segir ekkert réttlæta tímasetningu fréttarinnar og heldur því fram að málið hafi verið „endurhitað“ á nákvæmlega réttum tíma í pólitískum tilgangi.

„Nánast eins og fréttin hafi legið tilbúin í skúffu mánuðum saman og einfaldlega verið dregin fram á nákvæmlega ,,rétta“ augnablikinu,“ skrifar hún.

Dóra Björt bendir á að framkvæmdir við lóð við Egilsgötu hafi staðið yfir í marga mánuði og skipulagið verið afgreitt löngu áður en skýrsla um bensínstöðvar leit dagsins ljós.

„Hver er þá fréttin nákvæmlega? Tímasetningin er fréttin,“ segir hún.

Í færslunni sakar hún jafnframt Sjálfstæðisflokkinn um að hafa lengi beitt neikvæðri kosningabaráttu rétt fyrir kosningar og segir það sem veki sérstaka athygli nú sé að ríkisfjölmiðillinn virðist taka þátt í henni.

„Sjálfstæðisflokkurinn hefur alla tíð verið duglegur við að moka drullu inn í lokasprett kosningabaráttu. Það sem stingur núna er að ríkisfjölmiðillinn virðist ekki aðeins hlaupa með þá bolta heldur jafnvel sparka þeim af stað sjálfur,“ skrifar hún.

Hún nefnir einnig að fréttamaðurinn sem hafi leitt umfjöllunina hafi „augljós tengsl inn í Sjálfstæðisflokkinn og fjölskyldutengingar við harða gagnrýnendur meirihlutans“, þó hún taki fram að það þurfi ekki eitt og sér að þýða neitt.

Að hennar mati vakna engu að síður spurningar um forgangsröðun og hlutleysi hjá RÚV.

„Þegar RÚV ákveður að endurhita gamalt mál korteri fyrir kosningar án nýrra upplýsinga eða nýlegra atburða sem skýra tímasetninguna, þá er eðlilegt að fólk spyrji sig: Er verið að upplýsa almenning, eða hafa áhrif á kosningar?“ skrifar Dóra Björt.

María Sigrún hafnar ásökununum

María Sigrún Hilmarsdóttir, fréttamaður hjá RÚV, hafnar því að umfjöllun hennar um svokallaðar bensínstöðvalóðir hafi verið pólitískur áróður fyrir Sjálfstæðisflokkurinn, líkt og Dóra Björt heldur fram í færslu sinni.

Í svari við fyrirspurn Samstöðvarinnar segir María Sigrún að fréttin hafi fyrst og fremst fjallað um mikla verðhækkun á einni lóð.

„Það hefur hvergi komið fram áður og skrýtið að það teljist ekki fréttnæmt. Í fréttinni er verið að varpa upp mynd af því hvað hefur gerst síðan borgin afhenti olíufélögunum þær með byggingarrétti,“ segir hún.

Samkvæmt fréttinni hafi ein bensínstöðvalóð hækkað um 518 milljónir króna á 20 mánuðum án þess að framkvæmdir hæfust á svæðinu.

Hvað varðar fjölskyldutengslin sem Dóra Björt minntist á segist María Sigrún ekki átta sig á hvaða tengsl það eigi að vera.

„Ég veit ekki um hvaða fjölskyldutengsl er um að ræða en þetta eru 12 lóðir í Reykjavík. Við þekkjum öll einhverja sem eiga heima nálægt þessum lóðum svo ég skil ekki alveg,“ segir hún.

Hún segir jafnframt að umfjöllunin hafi fyrst og fremst snúist um verðmæti og fasteignaviðskipti.

„Fréttin snýst um gríðarleg verðmæti sem ganga kaupum og sölum,“ bætir hún við.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Skrifuðu gróf ummæli undir fullu nafni en vildu ekki ræða þau
Innlent

Skrifuðu gróf ummæli undir fullu nafni en vildu ekki ræða þau

Þar var meðal annars talað um „geðsjúkt translið“
Garðabæjardraumurinn til sölu með heitum og köldum potti
Myndir
Fólk

Garðabæjardraumurinn til sölu með heitum og köldum potti

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

Lögreglan rak nefið í mikið magn fíkniefna
Innlent

Lögreglan rak nefið í mikið magn fíkniefna

Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla
Heimur

Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla

Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar
Innlent

Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar

Mágur Toni Braxton lést í nótt
Heimur

Mágur Toni Braxton lést í nótt

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar
Innlent

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles
Heimur

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni
Heimur

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi
Innlent

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu
Landið

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu

Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

„Við höfum á of mörgum sviðum verið með vægari reglur en nágrannaríki okkar“
Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti
Pólitík

Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

Loka auglýsingu