
Ibn-Ismall Abdullah Mason hefur verið dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot eftir að hafa flutt rúmlega 13 kíló af maríhúana til Íslands.
Hann var ákærður fyrir að hafa staðið að innflutningi á samtals 13.440 grömmum af maríhúana 21. júlí síðastliðinn. Efnin voru ætluð til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni.
Samkvæmt ákæru kom Mason til landsins sem farþegi með flugi frá Kaupmannahöfn til Keflavíkurflugvallar. Fíkniefnin voru falin í farangurstösku hans sem barst til landsins síðar sama kvöld. Hann tilkynnti um töskuna og kvaðst vera eigandi hennar.
Við þingfestingu málsins játaði Mason brot sitt skýlaust og samþykkti kröfu ákæruvaldsins um upptöku fíkniefnanna. Málið var því tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu.
Í dóminum kemur fram að ekkert liggi fyrir um að Mason hafi áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Þá hafi rannsókn málsins ekki bent til þess að hann hafi átt fíkniefnin eða tekið þátt í skipulagningu innflutningsins umfram það að samþykkja að flytja efnin til landsins gegn greiðslu.
Dómurinn taldi hins vegar ekki unnt að líta fram hjá því mikla magni sem um ræddi og að aðkoma Mason hefði verið ómissandi liður í innflutningnum. Refsingin var því ákveðin fimm mánaða óskilorðsbundið fangelsi.