1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

4
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

5
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

6
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

7
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

8
Fólk

Gömul sál í nýjum búningi í Hafnarfirði til sölu

9
Innlent

Bruggaði ólöglega af krafti á Selfossi en lögreglan tæmdi lagerinn

10
Heimur

Áratugalöng leit endaði í faðmlagi systkina

Til baka

Fundaði með Evrópumálaráðherra Slóvakíu

„Njótum bæði góðs af Evrópusamstarfi og hinum sameiginlega innri markaði Evrópu”

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Juraj Blanár
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Juraj Blanár
Mynd: Utanríkisráðuneytið

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fundaði í gær með Juraj Blanár, utanríkis- og Evrópumálaráðherra Slóvakíu, sem staddur er hér á landi í opinberri heimsókn. Markmið heimsóknarinnar er að efla samskipti og samstarf Íslands og Slóvakíu á ýmsum sviðum.

Samkvæmt tilkynningu frá stjórnvöldum ræddu ráðherrarnir meðal annars tvíhliða samskipti ríkjanna, Evrópumál og stöðuna í Úkraínu. Þá voru einnig rædd tækifæri til aukins samstarfs, meðal annars á sviði jarðvarmanýtingar og í háskólasamstarfi.

Í tilkynningunni kemur fram að fjölmargir íslenskir nemendur hafi um árabil sótt sér heilbrigðismenntun í Slóvakíu og að möguleikar til frekara samstarfs á því sviði hafi verið til umræðu á fundinum.

Í heimsókn sinni á Íslandi fundaði Blanár einnig með forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, auk þess sem hann átti fund með utanríkismálanefnd Alþingis.

„Það var ánægjulegt að taka á móti Blanár og sjá áhuga hans og stjórnvalda í Slóvakíu á nánara samstarfi við Ísland. Það er margt sem við eigum sameiginlegt með Slóvökum, við erum tvö stórhuga smáríki, við erum bandamenn í Atlantshafsbandalaginu og njótum bæði góðs af Evrópusamstarfi og hinum sameiginlega innri markaði Evrópu. Fjölmargir íslenskir háskólanemar hafa sótt sér heilbrigðismenntun í Slóvakíu og í dag eru yfir 200 nemendur þar í landi. Það er mikill vilji fyrir því að styrkja samstarfið á sviði heilbrigðismála frekar,” sagði Þorgerður Katrín. „Mér þótti það sérstaklega áhugavert að ræða augljós tækifæri til þess að miðla íslenskri sérþekkingu í nýtingu jarðvarma í Slóvakíu. Mér skilst að jarðvarma má finna á um þriðjung landsvæðis þeirra en að ekki sé verið að nýta þannig góða kost til orkuframleiðslu. Þannig að það eru fjölmörg tækifæri til þess að rækta viðskiptasambandið okkar frekar.”

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla
Heimur

Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla

Fjölmiðlarnir uppljóstruðu um vitneskju forsætisráðherrans um yfirvofandi hryðjuverkaárás Hamas-liða 7. október 2023.
Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar
Innlent

Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar

Mágur Toni Braxton lést í nótt
Heimur

Mágur Toni Braxton lést í nótt

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar
Innlent

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles
Heimur

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni
Heimur

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi
Innlent

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu
Landið

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura
Heimur

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura

Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn
Heimur

Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn

Fjórir í haldi vegna fimm kílóa amfetamínsendingar
Innlent

Fjórir í haldi vegna fimm kílóa amfetamínsendingar

Sálfræðingur skorar á ráðherra
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

„Þetta eru þeir sem vilja bara skattleggja almúgann - ekki auðmenn“
Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm
Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti
Pólitík

Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti

Loka auglýsingu