1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

4
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

5
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

6
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

7
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

8
Fólk

Gömul sál í nýjum búningi í Hafnarfirði til sölu

9
Innlent

Bruggaði ólöglega af krafti á Selfossi en lögreglan tæmdi lagerinn

10
Heimur

Áratugalöng leit endaði í faðmlagi systkina

Til baka

Gylfi Ólafsson nýr bæjarstjóri Ísafjarðar

Framsókn og óháðir ganga til meirihlutasamstarfs við Viðreisn.

Kristján Þór Kristjánsson og Gylfi ólafsson
Kristján Þór Kristjánsson og Gylfi ÓlafssonOddvitar flokkanna stilltu sér upp fyrir mynd í tilefni af samkomulaginu
Mynd: Facebook

Framsókn og óháðir hafa gengið til meirihlutasamstarfs við Viðreisn í bæjarstjórn Ísafjarðar eftir sveitarstjórnarkosningarnar. Þetta kemur fram í frétt Bæjarins Besta. Framsókn og óháðir komu sterk út úr kosningunum og fengu fjóra bæjarfulltrúa kjörna, á meðan Viðreisn fékk einn fulltrúa.

Nýr málefnasamningur meirihlutans, sem inniheldur 34 atriði, var undirritaður í stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði í dag. Þar er meðal annars lögð áhersla á breytingar og uppbyggingu í skólamálum, áframhaldandi niðurgreiðslu skulda sveitarfélagsins og fjölbreyttar aðgerðir sem eiga að bæta lífsgæði íbúa á öllum aldri með sterkari innviðum og bættri þjónustu. Þá ætlar meirihlutinn einnig að vinna áfram að fjölgun verðmætra starfa á svæðinu.

Samkvæmt samkomulaginu verður Gylfi Ólafsson, bæjarfulltrúi Viðreisnar, nýr bæjarstjóri. Kristján Þór Kristjánsson, oddviti Framsóknar og óháðra, tekur við formennsku í bæjarráði og Elísabet Samúelsdóttir úr sama flokki verður forseti bæjarstjórnar.

„Ég er spenntur og auðmjúkur gagnvart nýju hlutverki. Ég bý að því að hafa verið í bæjarstjórn síðustu fjögur ár og þekki því ágætlega til flestra mála sem viðkoma rekstrinum. Það er traust milli okkar og Framsóknar. Við sækjum saman út frá miðjunni með hagsmuni bæjarbúa í fyrirrúmi,“ segir Gylfi Ólafsson.

Kristján Þór Kristjánsson segir Framsókn og óháða ánægða með samstarfið.

„Við í Framsókn og óháðum erum mjög ánægð með samkomulagið við Viðreisn. Framsókn var í minnihluta við upphaf síðasta kjörtímabils. Stefnan okkar þá var að vinna vel með meirihluta að öllum góðum málum sveitarfélaginu og íbúum til heilla. Við munum ekki breyta út af þeirri stefnu og vonumst til að vinna vel með öllum flokkum í bæjarstjórn,“ segir hann.

Hann bætir við að flokkurinn vilji styðja góð mál óháð því hvaðan þau komi.

„Það skiptir ekki máli hvaðan gott kemur og tökum við vel í öll mál sem við teljum bæta hag eða líðan íbúa í sveitarfélaginu,“ segir Kristján.

Ný bæjarstjórn tekur formlega til starfa 4. júní og nýr bæjarstjóri hefst störf degi síðar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lögreglan rak nefið í mikið magn fíkniefna
Innlent

Lögreglan rak nefið í mikið magn fíkniefna

Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla
Heimur

Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla

Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar
Innlent

Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar

Mágur Toni Braxton lést í nótt
Heimur

Mágur Toni Braxton lést í nótt

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar
Innlent

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles
Heimur

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni
Heimur

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi
Innlent

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu
Landið

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura
Heimur

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura

Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn
Heimur

Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn

Fjórir í haldi vegna fimm kílóa amfetamínsendingar
Innlent

Fjórir í haldi vegna fimm kílóa amfetamínsendingar

Sálfræðingur skorar á ráðherra
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

„Þetta eru þeir sem vilja bara skattleggja almúgann - ekki auðmenn“
Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm
Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti
Pólitík

Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti

Loka auglýsingu