1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

4
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

5
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

6
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

7
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

8
Heimur

Áratugalöng leit endaði í faðmlagi systkina

9
Fólk

Gömul sál í nýjum búningi í Hafnarfirði til sölu

10
Innlent

Bruggaði ólöglega af krafti á Selfossi en lögreglan tæmdi lagerinn

Til baka

Labbi óttast að auðöflin hrifsi til sín auðlindir þjóðarinnar

„Þegar valdasýki og gróðafíkn eru drifkraftur samfélaga rotna þau fljótt og sundrast“

Labbi í Mánum
Labbi í MánumLabbi hefur áhyggjur af hægribylgjunni
Mynd: Facebook

Ólafur Þórarinsson, betur þekktur sem Labbi í Mánum, talar um stjórnmálaástandið á Íslandi og vaxandi hægrisveiflu í heiminum í harðorðri Facebook-færslu sem hann birti eftir sveitarstjórnarkosningarnar.

Í upphafi færslunnar vitnar Labbi í ljóðlínurnar: „Ó flýið þið börn mín til framandi stranda, með fögnuði leitið þið öruggra landa,“ og segir þróunina í samfélaginu vekja með sér miklar áhyggjur.

Hann segir það „sannkallaða þjóðarskömm“ þegar stjórnmálamenn nái fylgi með því að „niðurlægja keppinauta sína“ og lofa um leið að færa auð og eigur almennings til þeirra sem fyrir eigi mest.

„Þau munu nú með auknum völdum hrifsa til sín það sem eftir er til að geta ráðskast með allt okkar stjórnkerfi og þar með koma afrakstri og gróða í eigin hendur, skattaskjól og mútugreiðslur til að kúga enn meira fé út úr þeim sem síst geta varið sig,“ skrifar hann.

Labbi segir valdasýki og gróðafíkn vera að verða ráðandi afl í samfélögum víða um heim og telur að slíkt leiði til hnignunar.

„Þegar valdasýki og gróðafíkn eru drifkraftur samfélaga (frumskógarlögmálið) rotna þau fljótt og sundrast eins og við sjáum í þessari ógnvekjandi hægrisveiflu sem nú breiðist út um heiminn í bland við rasisma,“ skrifar hann.

Þá gagnrýnir hann stjórnarandstöðuna harðlega og segir hana standa „argandi og gargandi til að hindra að lýðræðinu sé framfylgt og virtur sé vilji meirihluta landsmanna.“

Að hans mati hafi stór hluti fólks ekki lært af fyrri mistökum.

„Því miður er þó of stór hluti þeirra eins og ómálga börn sem ekki hafa náð þroska til að læra af mistökum sínum og því eru þau endurtekin aftur og aftur,“ segir Labbi.

Í lok færslunnar dregur hann upp dökka framtíðarsýn þar sem auðugir einstaklingar nái yfirráðum yfir samfélaginu á kostnað almennings.

„Það sorglega er að með uppgangi græðgisaflanna hér munu þau trúlega ná að hrifsa til sín restina af okkar arðbærustu auðlindum og eigum svo ekkert stendur eftir nema kannski fangabúðir auðaflanna (brottfararstöð) til að losa sig við þá sem ekki eru þeim þóknanleg og því tútnar veldi þeirra út meðan innviðir og almannaþjónusta grotnar niður því það þarf að reka hana með endalausri gjaldtöku sem rýrir enn frekar lífsskilyrði þeirra þrautpíndu sem þó standa undir óhófi auðræflanna sem haga hlutunum svona svo þeir geti lækkað eða afnumið álögur á þá sem allt eiga svo landið verði eins og einræðisríki nema með öfugum formerkjum. ,“ skrifar hann að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

Lögreglan rak nefið í mikið magn fíkniefna
Innlent

Lögreglan rak nefið í mikið magn fíkniefna

Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla
Heimur

Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla

Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar
Innlent

Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar

Mágur Toni Braxton lést í nótt
Heimur

Mágur Toni Braxton lést í nótt

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar
Innlent

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles
Heimur

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni
Heimur

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi
Innlent

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu
Landið

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura
Heimur

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura

Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn
Heimur

Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn

Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

„Við höfum á of mörgum sviðum verið með vægari reglur en nágrannaríki okkar“
Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti
Pólitík

Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

Loka auglýsingu