1
Heimur

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp

2
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

3
Heimur

Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju

4
Heimur

Sex manna fjölskylda brennd til bana

5
Fólk

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér

6
Innlent

Veðurskipti framundan

7
Fólk

„Klíkuskapur er kjarnamein íslensku þjóðarinnar“

8
Fólk

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum

9
Heimur

Ryan Adams aflýsir Evróputúrnum

10
Heimur

William Shatner greindist með krabbamein á sama tíma og dóttir hans

Til baka

ÖBÍ fer í mál við Reykjavík

„Réttindi fatlaðs fólks eru ekki valkvæður útgjaldaliður“

Hildur Björnsdóttir kosningamynd
Hildur BjörnsdóttirEr borgarstjóri Reykjavíkur
Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn

ÖBÍ réttindasamtök hafa höfðað mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur gegn Reykjavíkurborg vegna fjárhagsáætlunar borgarinnar fyrir árið 2026 á notendastýrðri persónulegri aðstoð (NPA). NPA er þjónusta sem gerir fötluðu fólki kleift að taka stjórn á eigin lífi og aðstoð.

Málið verður þingfest í dag, fimmtudaginn 4. júní 2026, og krefst ÖBÍ viðurkenningar á því að borgin hafi með samþykkt áætlunarinnar brotið gegn lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Þegar fjárhagsáætlunin var samþykkt í borgarstjórn 2. desember 2025 lágu fyrir að minnsta kosti 42 samþykktar umsóknir um NPA sem biðu þess eins að þjónustan yrði fjármögnuð. Að baki hverri umsókn er fatlaður einstaklingur sem borgin hefur þegar staðfest að eigi rétt á aðstoðinni en fær hana ekki.

„Reykjavíkurborg hefur sjálf viðurkennt rétt þessara 42 einstaklinga til aðstoðar en kýs samt að fjármagna hana ekki. Réttindi fatlaðs fólks eru ekki valkvæður útgjaldaliður sem má fresta milli ára, þau eru lögbundin og borginni ber að standa við þau,“ segir Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka.

Fjárhagsáætlunin gerir ekki ráð fyrir neinni fjölgun NPA-samninga á árinu 2026 og hafa borgaryfirvöld sjálf staðfest að umsóknirnar verði ekki fjármagnaðar á árinu.

Notendastýrð persónuleg aðstoð gerir fötluðu fólki kleift að lifa sjálfstæðu lífi á eigin forsendum og stjórna því sjálft hver aðstoðar það, við hvað og hvenær. Þjónustuformið er lögfest útfærsla á rétti fatlaðs fólks til sjálfstæðs lífs samkvæmt 19. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem hefur lagagildi hér á landi.

Á meðan samþykktar umsóknir sitja ófjármagnaðar á biðlista er fólki í reynd meinað að taka þátt í daglegu lífi, námi, atvinnu og félagslífi til jafns við aðra. Sá tími verður ekki bættur eftir á.

Með málinu vill ÖBÍ fá úr því skorið hvort sveitarfélögum sé heimilt að samþykkja umsóknir um lögbundna þjónustu en skilja fólk síðan eftir á biðlista árum saman með því að fjármagna hana ekki.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Klíkuskapur er kjarnamein íslensku þjóðarinnar“
Fólk

„Klíkuskapur er kjarnamein íslensku þjóðarinnar“

Valur Gunnarsson veltir fyrir sér klíkuskap landans
Ryan Adams aflýsir Evróputúrnum
Heimur

Ryan Adams aflýsir Evróputúrnum

Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju
Heimur

Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju

William Shatner greindist með krabbamein á sama tíma og dóttir hans
Heimur

William Shatner greindist með krabbamein á sama tíma og dóttir hans

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp
Heimur

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér
Fólk

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Sex manna fjölskylda brennd til bana
Myndband
Heimur

Sex manna fjölskylda brennd til bana

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum
Fólk

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

Innlent

Veðurskipti framundan
Innlent

Veðurskipti framundan

Breytingar taka við á fimmtudag
Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn
Innlent

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Loka auglýsingu