1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

3
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

4
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

5
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

6
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu

7
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

8
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

9
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

10
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

Til baka

Órói meðal eldfjallafræðinga

Þorvaldur Þórðarson svarar fyrir sig

Þorvaldur Þórðarson
Þorvaldur er einn þekktasti eldfjallafræðingur landsinsHefur áhyggjur af gosi á Snæfellsnesi
Mynd: Skjáskot/VF.is

Það virðist krauma í mönnum í jarðfræðigeiranum en Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur hefur svarað Haraldi Sigurðssyni, sem er einnig eldfjallafræðingur. Haraldur hafði sakað Þorvald um að setja fram órökstudda spá um eldgos á Snæfellsnesi en Haraldur hefur sjálfur mikið rannsakað eldvirkni Snæfellsness

„Ég treysti gögnum frá góðum mælingum frekar en órökstuddum spám. En eins og karlinn sagði, ef þú spáir nógu oft, þá hittir þú á rétta niðurstöðu einhvern tímann,“ sagði Haraldur meðal annars um spá Þorvaldar um eldgos. „Það er ábyrgðarhlutverk þegar sérfræðingur kemur fram með spá um náttúruhamfarir. Gera skal kröfu um að slík spá sé styrkt með birtum gögnum. Svo er ekki hér og reyndar rangt farið með.“

Nú hefur Þorvaldur svarað Haraldi á samfélagsmiðlum. „Það má vel vera að spá mín um eldgos á Snæfellsnesi innan 3 ára reynist röng, en allar dylgjur um að hún sé rökstudd sendi ég aftur til föðurhúsanna,“ skrifar eldfjallafræðingurinn.

„Eins og sést á meðfylgjandi myndum af skjálftavirkninni í Mýrarfjöllum (önnur sýnir dreifingu á landfræðilegri staðsetningu skjálftanna og hin sýnir dýptardreifingu þeirra í skorpunni. Gögnin eru frá Veðurstofu Íslands), þá mynda skjálftarnir þétta þyrpingu við Grjótárvatnið og, eins og hefur verið bent á, þá eru lang flestir þeirra á 15-20 km dýpi. en, þrátt fyrir það þá eru nokkuð margir skjálftar sem teygja sig upp undir 10 km dýpið og jafnvel grynnra,“ heldur hann áfram.

snæ
Þorvaldur birti gögn máli sínu til stuðningsTelur sig geta rökstutt sitt skoðun sína

Þá segir hann að ef þessi skjálftavirkni komi til vegna kvikusöfnunar þá bendi þétt skjálftavirkni á 10-15 km dýpt til þess að kvika sé að safnast fyrir um og rétt neðan við 20 kílómetrana.

„Sú staðreynd að skjálftavirknin í ákveðnum hrinum nái upp á 10-5 km dýpi er hægt að túlka á fleiri en einn veg. Þá er hægt að horfa fram hjá þessari staðreynd og einblína á dýpri skjálftana, það er ugglaust hægt að líta svo á a þeir komi til, einhverra hluta vegna, af kviku-söfnuninni á 20 km dýpi. Það er líka hægt að líta svo á að þeir komi til vegna þess að kvika sé að byrja að færa sig á grynnra dýpi, einhverskonar upphaf af kviku-söfnun ofar í skorpunni.

Nýjar rannsóknir á gosmyndunum á Snæfellsnesi (sjá texta úrklippur og meðfylgjandi myndir frá Kahl et al 2024 og Baxter et al 2023) sýna að í aðdraganda þessara eldgosa byrjar kviku-söfnunin á um 20 km dýpi og færir sig síðan upp á 10 km dýpi áður en kemur til eldgoss. Jafnframt benda þessar rannsóknir á að þegar svo er komið geti gos hafist með stuttum fyrirvara,“ skrifar Þorvaldur og birtir myndir máli sínu til stuðnings.

snæ2
snæ3
snæ4
snæ5
snæ6
snæ7
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Rússar sprengdu tvo strætisvagna fulla af fólki
Heimur

Rússar sprengdu tvo strætisvagna fulla af fólki

Lík lágu á víð og dreif um götuna eftir árásina
Úrelt orðalag lifir góðu lífi í reglugerð frá 1999
Innlent

Úrelt orðalag lifir góðu lífi í reglugerð frá 1999

Drap föður sinn en verður ekki svipt arfinum
Innlent

Drap föður sinn en verður ekki svipt arfinum

Ferjusamgöngur til Eyja fá ekki sömu stöðu og þjóðvegir
Innlent

Ferjusamgöngur til Eyja fá ekki sömu stöðu og þjóðvegir

Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings
Innlent

Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings

Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag
Pólitík

Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars
Innlent

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði
Heimur

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð
Heimur

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife
Heimur

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum
Innlent

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

Innlent

Úrelt orðalag lifir góðu lífi í reglugerð frá 1999
Innlent

Úrelt orðalag lifir góðu lífi í reglugerð frá 1999

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum
Innlent

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum

Drap föður sinn en verður ekki svipt arfinum
Innlent

Drap föður sinn en verður ekki svipt arfinum

Ferjusamgöngur til Eyja fá ekki sömu stöðu og þjóðvegir
Innlent

Ferjusamgöngur til Eyja fá ekki sömu stöðu og þjóðvegir

Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings
Innlent

Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars
Innlent

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars

Loka auglýsingu