1
Fólk

Daði og fjölskylda á ferð um landið

2
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

3
Heimur

Móðir Ben Needham hafnar kenningu lögreglu

4
Fólk

Gulla Jónsdóttir sópar að sér verðlaunum

5
Fólk

Nýtt upphaf eftir skilnað

6
Pólitík

Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu

7
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

8
Heimur

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu

9
Heimur

Krefst rannsóknar á tengslum Barrons Trump við Tate-bræðurna

10
Pólitík

Utanríkisráðuneytið forðast efnisleg svör um fund Marco Rubio

Til baka

Segir blaðamennsku á Íslandi í útrýmingarhættu

„Áróðurinn fyrir óligarkana í útgerðinni er svo skemmtilega gegnsær.”

Stjórn blaðamannafélagsins
Stjórn blaðamannafélagsinsMyndin tengist ekki fréttinni beint.
Mynd: Golli

Ritstjóri WikiLeaks, Kristinn Hrafnsson, gagnrýnir harðlega umræðu um íslenskan fjölmiðlamarkað og segir áróður fyrir hagsmunum útgerðarinnar augljósan. Þetta kemur fram í nýlegri Facebook-færslu hans þar sem hann bregst við frétt sem byggir á hlaðvarpsviðtali á Brotkastinu við Jón G. Hauksson.

Í færslunni heldur Kristinn því fram að RÚV sé nú teiknað upp sem helsta ógnin við útgerðarfyrirtæki landsins og að markmiðið sé að grafa undan starfsemi miðilsins

„Áróðurinn fyrir óligarkana í útgerðinni er svo skemmtilega gegnsær. Nú er RÚV helsta ógnin gegn ægivaldi útgerðarinnar og því skal ganga af því dauðu. Í besta heimi tugmilljarðamæringana er engin gagnrýnin umfjöllun - og að því skal stefnt,“ skrifar hann.

Hann gagnrýnir jafnframt viðbrögð við erlendri umfjöllun um íslenskan sjávarútveg og segir mótmæli við slíkri gagnrýni einkennast af tvískinnungi. „Svo er fárast yfir að ,,eitthvað danskt dagblað” skuli káfa upp á sérhagsmuni fárra auðmanna,“ segir í færslunni.

Kristinn telur stöðu blaðamennsku á Íslandi vera alvarlega og að hún standi höllum fæti. „Hið nöturlega er að í þessum málflutningi endurspeglast döpur staða alvöru blaðamennsku á Íslandi. Að sumu leyti er hún í nauðvörn og útrýmingarhættu,“ skrifar hann.

Að lokum varar hann við þróuninni og setur hana í víðara samhengi við stjórnarfar landsins. „Íslendingar eru korteri frá því að hætta að teljast lýðræðisríki. Óligarkaland er ekki lýðræðisríki,“ segir Kristinn Hrafnsson.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Krefst rannsóknar á tengslum Barrons Trump við Tate-bræðurna
Heimur

Krefst rannsóknar á tengslum Barrons Trump við Tate-bræðurna

Donald Trump segist ekki ætla að skipta sér að framsalsmáli bræðranna
Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu
Pólitík

Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu

Þrettán ára drengur ákærður fyrir skotárás í Svíþjóð
Heimur

Þrettán ára drengur ákærður fyrir skotárás í Svíþjóð

Gulla Jónsdóttir sópar að sér verðlaunum
Myndir
Fólk

Gulla Jónsdóttir sópar að sér verðlaunum

Halla Tómasdóttir í góðum gír á Hömrum
Myndir
Landið

Halla Tómasdóttir í góðum gír á Hömrum

Utanríkisráðuneytið forðast efnisleg svör um fund Marco Rubio
Pólitík

Utanríkisráðuneytið forðast efnisleg svör um fund Marco Rubio

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu
Myndband
Heimur

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu

Daði og fjölskylda á ferð um landið
Myndband
Fólk

Daði og fjölskylda á ferð um landið

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni
Myndir
Innlent

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi
Landið

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi

Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

Auðjöfurinn er styrktaraðili sjóðs sem styður ólöglegar landnemabyggðir
Íranska samfélagið skorar á Ísland að fordæma aftökur ungra mótmælenda
Innlent

Íranska samfélagið skorar á Ísland að fordæma aftökur ungra mótmælenda

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni
Myndir
Innlent

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela
Innlent

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands
Innlent

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands

Loka auglýsingu