1
Heimur

Harry og Meghan flýja Bretland á ný

2
Innlent

Lögreglan fellir niður mál gegn Heiðu Ósk

3
Fólk

Gömul Hafnarfjarðardrottning komin á markað

4
Fólk

Hér getur stórfjölskyldan teygt almennilega úr sér

5
Innlent

Lýsir yfir dauða internetsins eftir að hafa heyrt „AI-víkingapopp“

6
Innlent

„Eru lögreglumenn eitthvað heilagari en aðrir?“

7
Innlent

Segir borgarstjóra flokka íbúa eftir arðsemi

8
Fólk

Konur fá síður boð um stórtækar læknismeðferðir en karlar

9
Fólk

Of mikill svefn getur verið hættumerki

10
Innlent

Óvissa um blóðmerahald eftir álit EFTA-dómstólsins

Til baka

Segir múslimskar konur settar í búr á Íslandi

„Ég vil ekki búa í landi þar sem konur eru þvingaðar til þess að ganga með slæður.“

Stefán Einar Stefánsson
Stefán Einar Stefánsson stýrir þættinum Spursmál
Mynd: Skjáskot / mbl.is

Fjölmiðla- og Sjálfstæðismaðurinn Stefán Einar Stefánsson segir íslensk stjórnvöld þurfa að taka mun fastar á málefnum innflytjenda og hælisleitenda og telur að dæmum um árekstra ólíkra menningarheima hér á landi hafi fjölgað. Þetta kemur fram í viðtali við Sölva Tryggvason í hlaðvarpsþætti hans.

Stefán gagnrýnir meðal annars starfsemi mosku við Bústaðaveg og heldur því fram að konur séu aðskildar frá körlum við bænahald. Hann lýsir aðstöðunni sem „búri“ og segist hafa undir höndum myndbönd frá samkomum þar sem þetta sjáist.

„Þær biðja ekki með karlmönnunum, heldur eru settar inn í búr á meðan,“ segir Stefán. Hann telur að viðbrögðin yrðu allt önnur ef sambærileg aðgreining ætti sér stað innan Þjóðkirkjunnar.

Stefán vísar einnig til nýlegrar heimsóknar múslimapredikara til Íslands og fullyrðir að viðkomandi hafi talað fyrir því að íslenskt samfélag yrði íslamskt. Þá segir hann predikarann áður hafa sætt gagnrýni fyrir öfgafullar skoðanir í garð samkynhneigðra.

Í viðtalinu nefnir Stefán jafnframt atvik á landsmóti skáta á Akureyri. Þar hafi hópur ungra drengja frá Katar, að hans sögn, sýnt stúlkum óviðeigandi hegðun og áreitni. Hann segir lögreglu og barnaverndaryfirvöld hafa komið að málinu og hópnum að lokum verið vísað af mótinu.

Stefán telur þessi mál sýna að íslenskt samfélag þurfi að standa fastar vörð um þau gildi sem hér hafi verið byggð upp.

„Ég vil ekki búa í landi þar sem konur eru þvingaðar til þess að ganga með slæður eða landi þar sem ungir drengir telja sér það ekki samboðið að konur kenni þeim í skólastofunni,“ segir hann.

ESB ekki málið

Stefán gagnrýnir einnig stefnu ríkisstjórnarinnar í Evrópumálum og telur að stjórnvöld ættu frekar að einbeita sér að verðbólgu, vaxtastigi og ríkisfjármálum. Hann segir sóun innan opinbera kerfisins mikla og nefnir meðal annars byggingu nýs Landspítala og leikskólans Brákarborgar í því samhengi.

Hann segir að ríkisstjórnin eigi að leggja áherslu á að ná tökum á ríkisútgjöldum og efnahagsmálum áður en ráðist verði í frekari vegferð í átt að Evrópusambandinu.

„Það að fara í þessa Evrópusambandsvegferð mun ekki laga þau verkefni sem við stöndum frammi fyrir hér heima,“ segir Stefán.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Segir borgarstjóra flokka íbúa eftir arðsemi
Innlent

Segir borgarstjóra flokka íbúa eftir arðsemi

Hér getur stórfjölskyldan teygt almennilega úr sér
Myndir
Fólk

Hér getur stórfjölskyldan teygt almennilega úr sér

Of mikill svefn getur verið hættumerki
Fólk

Of mikill svefn getur verið hættumerki

Lögreglan fellir niður mál gegn Heiðu Ósk
Innlent

Lögreglan fellir niður mál gegn Heiðu Ósk

Tvö mál vegna heimilisofbeldis til rannsóknar
Innlent

Tvö mál vegna heimilisofbeldis til rannsóknar

Lýsir yfir dauða internetsins eftir að hafa heyrt „AI-víkingapopp“
Innlent

Lýsir yfir dauða internetsins eftir að hafa heyrt „AI-víkingapopp“

Óvissa um blóðmerahald eftir álit EFTA-dómstólsins
Innlent

Óvissa um blóðmerahald eftir álit EFTA-dómstólsins

Harry og Meghan flýja Bretland á ný
Heimur

Harry og Meghan flýja Bretland á ný

Gömul Hafnarfjarðardrottning komin á markað
Myndir
Fólk

Gömul Hafnarfjarðardrottning komin á markað

Konur fá síður boð um stórtækar læknismeðferðir en karlar
Fólk

Konur fá síður boð um stórtækar læknismeðferðir en karlar

„Eru lögreglumenn eitthvað heilagari en aðrir?“
Innlent

„Eru lögreglumenn eitthvað heilagari en aðrir?“

Reyndist hvort tveggja vopnaður og eftirlýstur í miðbænum
Innlent

Reyndist hvort tveggja vopnaður og eftirlýstur í miðbænum

Innlent

Segir borgarstjóra flokka íbúa eftir arðsemi
Innlent

Segir borgarstjóra flokka íbúa eftir arðsemi

„Virði manneskju verður aldrei bundið við skattgreiðslur“
„Eru lögreglumenn eitthvað heilagari en aðrir?“
Innlent

„Eru lögreglumenn eitthvað heilagari en aðrir?“

Lögreglan fellir niður mál gegn Heiðu Ósk
Innlent

Lögreglan fellir niður mál gegn Heiðu Ósk

Tvö mál vegna heimilisofbeldis til rannsóknar
Innlent

Tvö mál vegna heimilisofbeldis til rannsóknar

Lýsir yfir dauða internetsins eftir að hafa heyrt „AI-víkingapopp“
Innlent

Lýsir yfir dauða internetsins eftir að hafa heyrt „AI-víkingapopp“

Óvissa um blóðmerahald eftir álit EFTA-dómstólsins
Innlent

Óvissa um blóðmerahald eftir álit EFTA-dómstólsins

Loka auglýsingu