1
Heimur

Flugvél á leið frá Tenerife sneri við eftir hópslagsmál um borð

2
Heimur

Orrustuþota hrapaði skammt frá Moskvu

3
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

4
Fólk

Anna Marsý trúlofuð en týndi hringnum

5
Heimur

Dómari skipar Trump að afhenda gögn

6
Heimur

Dánarorsök Kaylee Hottle staðfest eftir banaslys

7
Heimur

Gagnrýnendur hrósa nýrri þáttaröð Klovn

8
Heimur

Karlmenn flykkjast í háreyðingu eftir að stuttbuxur voru leyfðar í vinnunni

9
Heimur

U16 landsliðsmenn Englendinga lentu í slagsmálum

10
Heimur

Kona ákærð fyrir morð á breskri fjögurra barna móður í Frakklandi

Til baka

Segir Þorgerði sýna taugaveiklun

„Hún er ráðalaus gagnvart því verkefni“

Stefán Einar Stefánsson
Stefán Einar Stefánsson stýrir þættinum Spursmál
Mynd: Skjáskot / mbl.is

Utanríkisráðherra Íslands, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varar við því sem hún kallar „hræðsluáróður“ í tengslum við fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Þetta kemur fram í viðtali við breska miðilinn The Guardian.

Í viðtalinu segir Þorgerður að andstæðingar áframhaldandi viðræðna beiti svipuðum aðferðum og stuðningsmenn Brexit í Bretlandi fyrir útgöngu landsins úr Evrópusambandinu. Hún nefnir sérstaklega að dreifing falsupplýsinga og villandi málflutningur geti haft áhrif á umræðuna og niðurstöðu kosninganna.

„Ég óttast að við stöndum frammi fyrir Brexit-augnabliki,“ segir ráðherrann og vísar til þess að stuðningsmenn Brexit hafi farið með ósannindi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar árið 2016.

Þá lýsir hún einnig áhyggjum af mögulegum erlendum áhrifum, meðal annars frá Rússlandi, og segir hættu á að utanaðkomandi aðilar reyni að hafa áhrif á íslenska umræðu með skipulagðri dreifingu falsupplýsinga.

Blaðamaður Morgunblaðsins verulega ósáttur

„Utanríkisráðherrann er farinn að ata auri erlendis á þá Íslendinga sem eru ósammála henni um Evrópumálin. Þ.e.a.s. meirihluta landsmanna. Um leið stórskaðar hún hagsmuni Íslands og stöðu þegar hún lætur eins og að hér séu stórir hópar að kalla eftir því að Ísland hverfi af innri markaði Evrópu. Það er nefnilega það sem gerðist með Brexit,“ skrifar fjölmiðlamaðurinn Stefán Einar Stefánsson um Þorgerði á samfélagsmiðlum.

„Þeir sem ekki vilja ganga í ESB vilja halda áfram góðu samstarfi við Evrópuþjóðir, halda í jákvæða hluta EES-samningsins sem hefur reynst afar hagfelldur, ekki aðeins fyrir Ísland heldur öll þau ríki sem hafa að honum komið. Frjáls viðskipti eru nefnilega undirstaða velmegunar, ekki endalaus samþjöppun yfirþjóðlegs ríkisvalds í Brussel,“ heldur hann áfram.

„Allt ber þetta keim af taugaveiklun í herbúðum utanríkisráðherrans. Hún er ráðalaus gagnvart því verkefni sem hún setti sér fyrir. Að troða Íslandi inn í ESB með góðu eða illu.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Nýtt upphaf eftir skilnað
Fólk

Nýtt upphaf eftir skilnað

Einvera sögð lykill að sjálfsuppgötvun og auknum lífsgæðum
Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu
Myndband
Heimur

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu

Daði og fjölskylda á ferð um landið
Myndband
Fólk

Daði og fjölskylda á ferð um landið

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni
Myndir
Innlent

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi
Landið

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi

Fjórir Palestínumenn og ólöglegur landnemi létust í blóðugum átökum á Vesturbakkanum
Heimur

Fjórir Palestínumenn og ólöglegur landnemi létust í blóðugum átökum á Vesturbakkanum

Íslandsmótið í sjósundi 2026
Myndband
Sport

Íslandsmótið í sjósundi 2026

Móðir Ben Needham hafnar kenningu lögreglu
Heimur

Móðir Ben Needham hafnar kenningu lögreglu

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

U16 landsliðsmenn Englendinga lentu í slagsmálum
Myndband
Heimur

U16 landsliðsmenn Englendinga lentu í slagsmálum

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela
Innlent

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands
Innlent

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands

Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

Auðjöfurinn er styrktaraðili sjóðs sem styður ólöglegar landnemabyggðir
Íranska samfélagið skorar á Ísland að fordæma aftökur ungra mótmælenda
Innlent

Íranska samfélagið skorar á Ísland að fordæma aftökur ungra mótmælenda

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni
Myndir
Innlent

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela
Innlent

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands
Innlent

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands

Loka auglýsingu