1
Heimur

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára

2
Heimur

Höfundur South Park nafngreinir hópnauðgara við Cornell-háskóla

3
Heimur

Karlmenn taka leynilega upp myndbönd af konum til að græða peninga

4
Fólk

Halla og Skjöldur setja á markað íslenska förðunarmerkið Just Makeup

5
Innlent

Tveir ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Vopnafirði

6
Heimur

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás

7
Innlent

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi

8
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

9
Innlent

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum

10
Innlent

Öllu starfsfólki NetApp á Íslandi sagt upp

Til baka

Selja pínulítið Laugavegshús á Selfossi

Húsið var reist árið 1894

Vesturbergeinbýli
Norðurgata 21

Sérstakt og sögulegt timburhús, sem upphaflega stóð við Laugaveg 37B í Reykjavík, er komið á sölu í Tjarnabyggð í Sveitarfélaginu Árborg. Um er að ræða 59,5 fermetra einbýlishús sem reist var árið 1894 og hefur því yfir 130 ára sögu að baki.

Húsið var flutt á núverandi stað við Norðurgötu 21 árið 2023 og stendur nú á rúmlega 10 þúsund fermetra eignarlóð. Ásett verð er 61,9 milljónir króna.

Húsið er á tveimur hæðum með risi undir mansardþaki og er klætt bárujárni að utan, bæði á veggjum og þaki. Með flutningnum hefur eignin fengið nýtt umhverfi þar sem stór lóð gefur fjölbreytta möguleika til útivistar og frekari uppbyggingar.

Innra skipulag hússins samanstendur af flísalagðri forstofu, opnu eldhúsi og stofu með nýlegri svartri viðarinnréttingu, spanhelluborði og innfelldum heimilistækjum. Undir timburstiganum á milli hæða er geymsluskápur.

Baðherbergið hefur verið endurnýjað með flísum á gólfum og veggjum, innréttingu, tengi fyrir þvottavél og walk-in sturtu með sturtubotni úr náttúrusteini. Flísar eru frá Parka en hreinlætistæki frá Tengi.

Á síðustu árum hefur verið ráðist í ýmsar endurbætur á húsinu. Gluggar voru endurnýjaðir árið 2012 og gólfbitar ásamt einangrun í gólfi hafa verið endurnýjuð. Þá hefur verið skipt um vatns- og miðstöðvarlagnir og húsið er hitað með hitaveitu. Einnig er varmaskiptir á neysluvatni.

Við húsið er um 80 fermetra timburverönd með skjólveggjum og heitum potti auk yfirbyggðs grillskýlis. Á lóðinni hefur verið jarðvegsskipt á um 400 fermetra svæði í kringum húsið og rotþró verið fullfrágengin. Einnig fylgir timburskýli fyrir ruslatunnur.

laugarvegurselfoss2
laugarvegurselfoss3
laugarvegurselfoss4
laugarvegurselfoss5
laugarvegurselfoss6
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar
Innlent

Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar

„Ávísun á aukin félagsleg vandamál“
Skellur í september – Verðbólgan í hæstu hæðir í meira en tvö ár
Innlent

Skellur í september – Verðbólgan í hæstu hæðir í meira en tvö ár

Chad Lowe og Kim Painter syrgja 13 ára dóttur sína
Heimur

Chad Lowe og Kim Painter syrgja 13 ára dóttur sína

Gripinn við „afbrigðilega hegðun“ í Breiðholti
Innlent

Gripinn við „afbrigðilega hegðun“ í Breiðholti

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi

Svara versnandi líðan barna
Innlent

Svara versnandi líðan barna

Ný barnabók kennir börnum að greina á milli góðra og vondra leyndarmála
Myndir
Menning

Ný barnabók kennir börnum að greina á milli góðra og vondra leyndarmála

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum
Innlent

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás
Heimur

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás

Erlendum nemendum fjölgar á meðan færri Íslendingar fara utan
Innlent

Erlendum nemendum fjölgar á meðan færri Íslendingar fara utan

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára
Heimur

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára

Fólk

Halla og Skjöldur setja á markað íslenska förðunarmerkið Just Makeup
Fólk

Halla og Skjöldur setja á markað íslenska förðunarmerkið Just Makeup

Áratugareynsla úr sjónvarpi, leikhúsi, Eurovision og dragheiminum sameinuð í nýju íslensku förðunarmerki þar sem sköpunargleði og frelsi eru í fyrirrúmi.
Birtan leikur um íbúð við Kuggavog
Myndir
Fólk

Birtan leikur um íbúð við Kuggavog

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum
Fólk

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

Ofurfæðan tempeh - plöntupróteinið sem skákar egginu
Fólk

Ofurfæðan tempeh - plöntupróteinið sem skákar egginu

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu
Myndir
Fólk

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu

Loka auglýsingu