1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

5
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

6
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

7
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

8
Heimur

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell

9
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

10
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

Til baka

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

Sendiherranum var „falið að sitja fundinn fyrir Íslands hönd til að fylgjast með umræðum“

Svanhildur Hólm
Svanhildur Hólm ValsdóttirSvanhildur Hólm sótti fund Marco Rubio
Mynd: chamber.is

Svanhildur Hólm Valsdóttir, sendiherra Íslands í Washington, sat alþjóðlega ráðstefnu sem Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, boðaði til um það sem bandarísk stjórnvöld kalla endurvakta ógn frá öfgahópum á vinstri væng stjórnmálanna.

Þetta staðfestir utanríkisráðuneytið í svari við fyrirspurn Mannlífs.

Ráðstefnan fór fram 15. júlí og sátu hana fulltrúar frá rúmlega 60 ríkjum, þar á meðal ráðherrar, sendiherrar og háttsettir embættismenn. Þegar fyrst var greint frá fundinum lá ekki fyrir hver hefði mætt fyrir Íslands hönd.

Samkvæmt utanríkisráðuneytinu var það Svanhildur Hólm sem sótti fundinn.

„Ísland sendi ekki utanríkisráðherra til þátttöku og var því sendiherra Íslands í Washington falið að sitja fundinn fyrir Íslands hönd til að fylgjast með umræðum,“ segir í svari ráðuneytisins.

Þar kemur jafnframt fram að Bandaríkin hafi boðið til ráðherrafundarins undir yfirskriftinni The Resurgence of Political Terrorism.

„Samkvæmt upplýsingum frá bandarískum stjórnvöldum sóttu rúmlega sextíu ríki fundinn, ýmist ráðherrar, sendiherrar eða háttsettir embættismenn.“

Fundurinn vakti athygli þar sem Trump-stjórnin hefur lagt aukna áherslu á að berjast gegn því sem hún skilgreinir sem öfgahreyfingar á vinstri væng stjórnmálanna. Marco Rubio sagði í opnunarræðu sinni að um væri að ræða alþjóðlega ógn sem ríki þyrftu að bregðast sameiginlega við.

Í frétt Time um fundinn kom hins vegar fram að fyrirliggjandi rannsóknargögn sýni að hægri öfgamenn hafi valdið fleiri banvænum árásum í Bandaríkjunum en öfgamenn á vinstri vængnum á undanförnum árum, þótt atvik tengd vinstri öfgum hafi farið fjölgandi.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu
Heimur

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á
Heimur

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds
Heimur

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví
Innlent

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“
Skoðun

Gunnlaugur Stefánsson

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Þjónustan skorin niður hjá Strætó
Innlent

Þjónustan skorin niður hjá Strætó

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun
Innlent

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun

Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

„Það sendir vonarglætu í heim þar sem mennskan er á undanhaldi“
Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar
Pólitík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar

Mansal og karlmennska fá stærstu styrkina
Pólitík

Mansal og karlmennska fá stærstu styrkina

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

Loka auglýsingu