1
Heimur

Neyðartilvik kom upp í flugi til Tenerife

2
Heimur

Enn eitt áfallið í Kennedy-fjölskyldunni

3
Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

4
Innlent

Kyrkti sambýliskonuna og barði ítrekað í andlitið

5
Innlent

Kvenfangi kvartaði undan klefamálum á Hólmsheiði

6
Fólk

Sérstætt einbýlishús með óvenjulegt útlit til sölu

7
Pólitík

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi

8
Pólitík

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða

9
Innlent

Jasmina skorar á Elliða að segja hvaða skaða fjölskylda hennar hafi valdið

10
Fólk

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu

Til baka

Þórður Snær tæklar Snorra

„Átti að virka sem segull á ungviðið í landinu“

Snorri Másson
Snorri Másson, þingmaður MiðflokksinsEr einnig varaformaður hans
Mynd: Víkingur

Þórður Snær Skagfjörð Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, hefur bæst í hóp fjölmargra sem hafa sett út á orð og gjörðir Snorra Mássonar, varaformanns Miðflokksins, á undanförnum dögum.

Óhætt er að segja að varaformaðurinn hafi komið sér í hundakofann hjá mörgum eftir að hann gagnrýndi sýnileika regnbogafánans í grunnskólum landsins.

Þórður virðist ekki vera sérstakur aðdáandi Snorra ef marka má nýjan pistill sem hann birti í morgun.

„Miðflokkurinn hélt sig hafa dottið í lukkupottinn þegar bandarískir öfgamenn buðu honum á námskeið í hvernig eigi að veikja lýðræði, alþjóðasamvinnu og mannréttindi með því að pakka sundrungu sinni í falskar umbúðir skynsemi og fullveldisástar og beina henni beint gegn mörgum viðkvæmustu hópum samfélagsins,“ skrifar Þórður um málið.

„Helsti lottóvinningurinn átti að hafa verið að hafa fengið ungan varaformann til liðs við sig sem átti að virka sem segull á ungviðið í landinu vegna þess að hann birti kámug TikTok-vídjó af sér með andlitið of nálægt myndavélinni að „spyrja spurninga“ og „ræða það sem aðrir þora ekki að ræða“. Lykilatriði voru að vera andstyggilegur við minnihlutahópa og viðurkenna aldrei mistök heldur bregðast við gagnrýni með því að gera sig, gerandann, að fórnarlambi allra aðstæðna.“

Í umfjöllun sinni rifjar Þórður Snær upp fleiri dæmi um málflutning Snorra á síðustu mánuðum. Þar nefnir hann meðal annars sjónvarpsviðtal í Kastljósi í september, þar sem Snorri hafi haldið því fram að mannréttindabarátta hinsegin fólks væri „hugmyndafræði“ og að þeir sem gagnrýndu hana væru raunveruleg fórnarlömb umræðunnar.

Einnig bendir hann á að í desember hafi Snorri lýst andstöðu við EES-samninginn og talað fyrir takmörkunum á fjölda þeirra sem fá að setjast að á Íslandi. Þórður Snær gagnrýnir að slíkar yfirlýsingar hafi ekki fylgt skýrar útskýringar á því hvernig samfélagið ætti að þróast án samningsins eða hvernig skilgreina ætti hverjir teljist til „alvöru Íslendinga“.

Þá segir hann að í umræðunni hafi einnig komið fram svokallaðar „hundaflautur“ um að hvítir Íslendingar þurfi að eignast fleiri börn til að vernda þjóðina, sem og hugmyndir um breytingar á fæðingarorlofi og auknar heimagreiðslur.

„Aðrir forvígismenn Miðflokksins tóku þátt í þessum samkvæmisleik og sögðu Snorra ítrekað misskilinn eða vera bara að spyrja spurninga. Þegar vitleysan varð yfirgengileg var klykkt út með því að það ætti ekkert að taka allt alvarlega sem Snorri segir.

Hann segi enda oft bara eitthvað,“ skrifar hann að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera
Heimur

Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera

„Örin hverfa aldrei alveg.“
Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns
Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna
Heimur

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi
Pólitík

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu
Innlent

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum
Heimur

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum
Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu
Myndband
Heimur

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð
Heimur

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð

Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé
Heimur

Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna
Innlent

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða
Innlent

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða

Pólitík

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi
Pólitík

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi

„Það er að virka betur en lagt var upp með“
Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða
Pólitík

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

Ráðuneytið herðir þrýstinginn á Apple
Pólitík

Ráðuneytið herðir þrýstinginn á Apple

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi
Pólitík

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi

Nanna segir Viðreisn leika aðalhlutverkið í froðu og frösum
Pólitík

Nanna segir Viðreisn leika aðalhlutverkið í froðu og frösum

Loka auglýsingu