1
Peningar

Icelandair skerðir þjónustu við farþega

2
Landið

Bergey valin fram yfir tíu aðra umsækjendur

3
Pólitík

Dóttir fyrrverandi forsætisráðherra aðstoðar núverandi borgarstjóra

4
Fólk

Níu matvæli sem aldrei ætti að gefa köttum

5
Fólk

Ofurkrúttlegt og agnarsmátt einbýli til sölu

6
Fólk

Einmanaleg glíma þeirra sem rjúfa fjölskyldubönd

7
Pólitík

Þórður Snær hvetur Íslendinga til að hlusta á Bjarna Ben

8
Innlent

Dæmdir fyrir að stela milljónaskartgripum í Hafnarfirði

9
Fólk

Draumaraðhús í Garðabæ sett á sölu

10
Innlent

Sækir gegn íslenska ríkinu en varar við ESB

Til baka

Þrjátíu og fimm ára karlmaður ákærður eftir andlát níu ára stúlku í Skotlandi

Stúlkan var í útilegu með fjölskyldu sinni

stúlkan
Minnie MerrimanMaðurinn sem er í haldi lögreglu þekkti Minnie
Mynd: Skoska lögreglan

Níu ára stúlka sem lést eftir að hafa fundist alvarlega slösuð í bænum Arbroath í Skotlandi hefur verið nafngreind sem Minnie Merriman.

Stúlkan fannst alvarlega slösuð á Elliot-iðnaðarsvæðinu skömmu eftir miðnætti á mánudag. Hún var flutt í skyndi á Ninewells-sjúkrahúsið í Dundee en lést af áverkum sínum skömmu eftir komuna þangað.

Þrír aðrir voru einnig fluttir á sjúkrahús en voru útskrifaðir síðar sama dag.

Lögreglan hefur handtekið 35 ára gamlan mann og ákært hann vegna dauða stúlkunnar. Að sögn lögreglu þekktust Minnie og maðurinn og er hann væntanlegur fyrir dóm í dag.

Lögreglan segir að fjölskylda Minnie sé frá Vestur Jórvíkurskíri á Englandi og hafi verið í útilegu á svæðinu þegar atvikið átti sér stað.

Í yfirlýsingu frá fjölskyldunni segir:

„Við erum niðurbrotin vegna missis okkar á ástkæru Minnie Moo, sem var einstök, falleg og hugrökk stúlka. Fjölskyldan biður um að friðhelgi einkalífs okkar verði virt á þessum afar erfiða tíma.“

Rannsókn á andláti Minnie stendur enn yfir.

Vitni sagði að það hefði ekið fram hjá fjölskyldunni nokkrum klukkustundum áður en stúlkan lést og séð hana matreiða á útilegugaseldavél.

Önnur kona sagðist hafa séð tjald reist við hlið bifreiðar og lýsti aðstæðunum sem „undarlegum“.

Iðnaðarsvæðið þar sem stúlkan fannst liggur á milli íbúðahverfis, verslunarsvæðis og strandarinnar í Arbroath og er jafnan fjölfarið yfir daginn. Tvö tjaldvagnasvæði eru í nágrenninu en hvorugt þeirra hefur kannast við að fjölskyldan hafi gist þar áður en atvikið átti sér stað.

Íbúi á svæðinu, Bill Smith sagði að málið hefði komið öllum í opna skjöldu.

„Þetta er ótrúlegt. Þetta er það eina sem fólk talar um í dag því þetta er svo sorglegt. Enginn virðist vita hvað gerðist. Það er hryllilegt að svona ung stúlka hafi misst lífið hér,“ sagði hann.

Lögreglan hefur girt af stórt svæði þar sem rannsókn fer fram. Meðal annars hefur blár Peugeot-bíll verið innsiglaður og tæknideild lögreglu komið upp rannsóknartjaldi á vettvangi.

Mike Ness, rannsóknarlögreglumaður hjá sérsveit sem rannsakar alvarleg sakamál, sagði að hugsanir lögreglunnar væru hjá öllum sem hefðu orðið fyrir áhrifum af atburðinum, sérstaklega fjölskyldu Minnie.

Hann sagði lögreglu verða áfram með viðveru á svæðinu á meðan rannsókninni vindur fram og hvatti alla sem kynnu að búa yfir upplýsingum til að hafa samband við lögreglu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Líkfundur við Austurbæjarskóla
Innlent

Líkfundur við Austurbæjarskóla

Lögregla vinnur nú að því að bera kennsl á hinn látna
Heilbrigðiseftirlitið innkallar krydd vegna aðskotahluta
Innlent

Heilbrigðiseftirlitið innkallar krydd vegna aðskotahluta

„Okkur þykir það mjög leitt“
Innlent

„Okkur þykir það mjög leitt“

Skilur að Ása Berglind vilji ekki mæta í spjallþátt
Innlent

Skilur að Ása Berglind vilji ekki mæta í spjallþátt

Baywatch-stjarna skellir sér á OnlyFans
Heimur

Baywatch-stjarna skellir sér á OnlyFans

Limminnsti maður heims fer í aðgerð
Heimur

Limminnsti maður heims fer í aðgerð

„Ég hugsa að við tímum ekki að selja þetta“
Peningar

„Ég hugsa að við tímum ekki að selja þetta“

Brjóstabrandari forsætisráðherra Ástralíu fór fyrir brjóstið á mörgum
Heimur

Brjóstabrandari forsætisráðherra Ástralíu fór fyrir brjóstið á mörgum

Landskjörstjórn segir Morgunblaðið fara með rangt mál
Innlent

Landskjörstjórn segir Morgunblaðið fara með rangt mál

Fyrrum bæjarfulltrúi gerður að framkvæmdastjóra
Peningar

Fyrrum bæjarfulltrúi gerður að framkvæmdastjóra

Segir múslimskar konur settar í búr á Íslandi
Myndband
Innlent

Segir múslimskar konur settar í búr á Íslandi

Sæstrengur færður vegna Harry Potter-aðdáenda
Heimur

Sæstrengur færður vegna Harry Potter-aðdáenda

Ofurkrúttlegt og agnarsmátt einbýli til sölu
Myndir
Fólk

Ofurkrúttlegt og agnarsmátt einbýli til sölu

Heimur

Baywatch-stjarna skellir sér á OnlyFans
Heimur

Baywatch-stjarna skellir sér á OnlyFans

Bætist þar með í hóp þekktra Hollywood-leikara á OnlyFans
16 látnir eftir náttúruhamfarir
Heimur

16 látnir eftir náttúruhamfarir

Limminnsti maður heims fer í aðgerð
Heimur

Limminnsti maður heims fer í aðgerð

Brjóstabrandari forsætisráðherra Ástralíu fór fyrir brjóstið á mörgum
Heimur

Brjóstabrandari forsætisráðherra Ástralíu fór fyrir brjóstið á mörgum

Sæstrengur færður vegna Harry Potter-aðdáenda
Heimur

Sæstrengur færður vegna Harry Potter-aðdáenda

Loka auglýsingu