1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

4
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

5
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

6
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

7
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

8
Heimur

Áratugalöng leit endaði í faðmlagi systkina

9
Innlent

Bruggaði ólöglega af krafti á Selfossi en lögreglan tæmdi lagerinn

10
Fólk

Gömul sál í nýjum búningi í Hafnarfirði til sölu

Til baka

„Verið að ata væna manneskju allt of miklum auri fyrir afar litlar sakir“

Björn Þorláksson varar við fleiri „hneykslismálum“ fyrir kosningar

Heiða Björg Hilmisdóttir
Heiða Björg HilmisdóttirBjörn tekur upp hanskann fyrir borgarstjórann
Mynd: Víkingur

Björn Þorláksson, þáttastjórnandi á Samstöðinni og rithöfundur, segir umræðu um hið svokallaða „kreditkortamál“ borgarstjóra geta snúist upp í andhverfu sína ef haldið verði áfram að fjalla um málið fram að kosningum.

„Það er með hneykslisfréttir sem plantað er korteri fyrir kosningar, að áhrif þeirra verða stundum þveröfug miðað við ásetning lekaliða sem reyna að ná höggi á tiltekinn aðila, oftast keppinaut í gegnum blaðamenn.“ Þannig hefst Facebook-færsla Björns. Hann telur vissulega fréttnæmt að borgarstjóri hafi ekki kunnað rétt með kort borgarinnar að fara, en segir málið þó ekki stórfrétt.

„Að borgarstjóri hafi ekki kunnað að nota kort borgarinnar er frétt. En engin stórfrétt. Óþarfi að mjólka málið sólarhringum saman þótt það sé forvitnilegt. Fjárhæðir eru mjög lágar. Borgarstjóri skýrir mál sitt ágætlega,“ skrifar hann og bætir við að í samanburði við „tugmilljarða sukk og rányrkju sumra sambærilegra oddamanna hægra megin“ í gegnum tíðina sé líklegt að pólitíski skaðinn verði lítill.

Björn segir jafnframt að ef fjölmiðlar og pólitískir andstæðingar „mjólki málið“ fram að kjördegi gæti það fremur vakið samúð með Heiða Björg Hilmisdóttir og Samfylkingin. Fólki gæti fundist verið að ganga of hart fram gegn „vænni manneskju fyrir afar litlar sakir“.

„Ef meiningin er að klæmast á málinu allt fram á kjördag gæti fólki ofboðið og Samfó og Heiða fái þá samúðaratkvæði. Að fólki finnist þá sem verið sé að ata væna manneskju allt of miklum auri fyrir afar litlar sakir.“

Þrátt fyrir það segir Björn að skoðun sín á pólitískri framtíð Heiðu hafi ekki breyst og vísar til þess að hann hafi áður skrifað að hennar tími innan Samfylkingarinnar væri liðinn. Hann lýsir henni þó sem grandvarri og traustri stjórnmálakonu, sérstaklega gagnvart jaðarsettum hópum og efnaminna fólki.

Í lok færslunnar varar hann við því að fleiri sambærileg „hneykslismál“ kunni að birtast í fjölmiðlum á næstu dögum fyrir kosningar. Hann hvetur almenning til að sýna gagnrýna hugsun og segir pólitík stundum geta breyst í „óþverraiðju“ þar sem menn ráðist hver á annan.

„Ekki kæmi á óvart að fleiri keimlík "hneykslismál" dúkki upp í fjölmiðlum á næstu dögum. Almenningur þarf að vera vakandi, beita krítískri hugsun. Pólitík getur verið æðsta list hins mögulega en hún getur líka á tímapunktum sem þessum orðið óþverraiðja þar sem grandvart fólk breytist í blóðsugur og enginn er annars bróðir í leik...“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kærasti Gypsy Rose látinn
Heimur

Kærasti Gypsy Rose látinn

„Rannsókn á andlátinu stendur enn yfir.“
Helgi í Góu verður ríkari
Peningar

Helgi í Góu verður ríkari

Framkvæmdastjóri sýknaður af fjárdrætti eftir gagnrýni dómsins á rannsóknina
Innlent

Framkvæmdastjóri sýknaður af fjárdrætti eftir gagnrýni dómsins á rannsóknina

Móðir vill að horfinn sonur verði úrskurðaður látinn
Innlent

Móðir vill að horfinn sonur verði úrskurðaður látinn

Skrifuðu gróf ummæli undir fullu nafni en vildu ekki ræða þau
Innlent

Skrifuðu gróf ummæli undir fullu nafni en vildu ekki ræða þau

Garðabæjardraumurinn til sölu með heitum og köldum potti
Myndir
Fólk

Garðabæjardraumurinn til sölu með heitum og köldum potti

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

Lögreglan rak nefið í mikið magn fíkniefna
Innlent

Lögreglan rak nefið í mikið magn fíkniefna

Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla
Heimur

Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla

Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar
Innlent

Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar

Mágur Toni Braxton lést í nótt
Heimur

Mágur Toni Braxton lést í nótt

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar
Innlent

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar

Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

„Við höfum á of mörgum sviðum verið með vægari reglur en nágrannaríki okkar“
Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti
Pólitík

Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

Loka auglýsingu