Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Meint fórnarlamb Óttars pantaði tíma hjá lögreglu- Fjölskylduharmleikur undanfari átaka

Hæstaréttarlögmaðurinn Óttar Pálsson er borinn þungum sökum um að hafa ráðist á verslunarmann þann 5. október. .
Hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur­inn Óttar Pálsson er bor­inn þungum sökum um að hafa ráð­ist á versl­un­ar­mann þann 5. októ­ber. .

Óttar Pálsson hæsta­rétt­ar­lög­maður hefur verið bor­inn þeim sökum að hafa ráð­ist á Reyni Berg Þor­valds­son versl­un­ar­mann þann 5. októ­ber síð­ast­lið­inn í verslun þess síð­ar­nefnda í mið­borg Reykja­víkur. Lögregla mætti á stað­inn og kann­aði vett­vang. Ekki fannst vopn á staðnum. Lög­mað­ur­inn er sak­aður um að hafa skaðað Reyni með bar­smíðum og að hafa brákað rif­bein í átök­unum. Vitni eru að atvik­inu, sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs. Staðhæft er að versl­un­ar­eig­and­inn hafi ekki beitt lík­am­legu ofbeldi í vörn sinni. Ekki hefur feng­ist stað­fest hvert var upp­hafið að átök­unum. Mannlíf greindi fyrst frá mál­inu á föstu­dag. Í fram­haldi þeirrar fréttar birti Morg­un­blaðið frétt um skilnað Óttars og eig­in­konu hans. Áréttað skal að Mannlíf leggur ekki mat á það sem gerð­ist á vett­vangi og veit ekki hverjar máls­bætur Óttar lög­maður kann að hafa. Hann hefur ekki svarað ítrek­uðum skila­boðum síðan á föstu­dag­inn.

Fjölskylduharmleikur

Meint árás á rætur í heift­úð­legum átökum vegna náinnar vin­áttu Óttars og Áslaugar Björg­vins­dóttur, eig­in­konu Reynis Berg, sem leitt hefur af sér fjöl­skyldu­harm­leik. Þau eru bæði í eig­enda­hópi lög­fræði­stof­unnar Logos. Óttar er fyrr­ver­andi vara­for­maður Lög­manna­fé­lags­ins og Áslaug er núver­andi vara­for­maður. Árás­ar­málið er grafal­var­legt fyrir Óttar sem mun missa rétt­indi sín ef sann­ast að hann hafi staðið að meintri lík­ams­árás og valdið mann­inum meiri­háttar skaða.

Eftir atvikið í versl­un­inni við Hverf­is­götu leit­aði Reynir til bráða­mót­töku þar sem meiðsli hans voru könnuð og skráð. Hann hafði í fram­hald­inu sam­band við lög­reglu, sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs, og óskaði eftir því að leggja fram form­lega kæru á hendur Óttari. Honum var úthlut­aður tími hjá lög­regl­unni nú í lok yfir­stand­andi mán­aðar.

Heim­ildir Mannlífs herma að leitað hafi verið sátta um helg­ina í því skyni að fá fram þöggun í mál­inu. Þetta er ekki stað­fest. Meint fórn­ar­lamb í árásinni hefur ekki svarað spurn­ingum Mannlífs þessa efnis fremur en Óttar. Þá hefur fram­kvæmda­stjóri Logos ekki látið ná í sig. Það er á valdi lög­reglu og sak­sókn­ara að fella málið niður eða halda því áfram, burt­séð frá því hvort meint fórn­ar­lamb hverfi frá kæru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum