Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Heimur

Svif­vængja­flug­maður lést í hörmu­legu slysi

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Peningar

Lands­liðs­konur í ný störf

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Sveinn Andri leiðréttir Loga Geirsson: „Vonandi fer þessum rangfærslum að linna“

Gísli Marteinn Baldursson
Gísli Marteinn Bald­urs­son Mynd: Rúv-skjáskot

Sveinn Andri Sveins­son skýtur föstum skotum á Loga Geirsson, vegna þess sem hann segir vera rang­færslur þegar hand­bolta­spek­ing­ur­inn mætti í settið hjá Gísla Marteini í gær­kvöldi.

„Logi Geirsson hjá Gísla Martein í kvöld: „Afi minn, Hall­steinn Hin­riks­son, er faðir hand­knatt­leiks­ins á Íslandi; hann kom með hand­bolt­ann frá Danmörku.“

Það er að verða nokkuð lýj­andi að leið­rétta þessa hafn­firsku rang­færslu, en ég hef samt tekið það verk­efni að mér.“ Þannig hefst Facebook-færsla lög­manns­ins Sveins Andra Sveins­sonar sem hann birti í gær­kvöldi. Fer hann síðan yfir stað­reyndir máls­ins:

„Afi minn, Valdimar Svein­björns­son, kom úr íþrótta­kenn­ara­námi í Danmörku árið 1921. Hann var ráð­inn leik­fi­mi­kenn­ari við Mið­bæj­ar­skól­ann og Barna­skóla Hafn­ar­fjarðar, auk þess að ann­ast þjálfun hjá ýmsum íþrótta­fé­lögum.

Valdimar stóð fyrir fyrstu kapp­leikj­unum í hand­bolta árið 1922, sem voru bæj­ar­keppnir milli reyk­vískra og hafn­firskra skóla­pilta. Hand­knatt­leiks­sam­band Íslands (HSÍ) miðar við það ár sem upp­hafsár hand­bolta á Íslandi og var því haldið upp á 100 ára afmæli hand­bolt­ans 2022.“

Útskýrir lög­mað­ur­inn því næst hvers vegna það stenst ekki skoðun að afi Loga Geirs­sonar hafi flutt hand­bolt­ann til lands­ins.

„Hall­steinn var fæddur 1904, átta árum yngri en Valdimar og var þannig aðeins 17 ára þegar leik­fi­mi­kenn­ar­inn Valdimar byrj­aði að kenna hand­bolta á Íslandi.

Valdimar var síðar skip­aður leik­fi­mi­kenn­ari við Mennta­skól­ann í Reykja­vík árið 1929. Við starfi hans í Hafn­ar­firði tók Hall­steinn.“

Að lokum segir Sveinn Andri að þó það sé rétt að Hall­steinn hafi stofnað fyrsta hand­boltalið Íslands, breyti það engu um það hver faðir hand­bolt­ans á Íslandis sé:

„Hall­steinn má eiga það að hann stofn­aði fyrsta hand­knatt­leiksliðið á Íslandi, FH.Það breytir því ekki að hinn opin­ber­lega við­ur­kenndi faðir hand­bolt­ans á Íslandi skv. HSÍ er Valdimar Svein­björns­son. Nokkrir afkom­endur hans hafa heldur betur komið við sögu hand­bolt­ans; Óskar Bjarni Ósk­ars­son og Valdimar Grimsson, þeirra þekkt­astir.Vonandi fer þessum rang­færslum að linna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Valur Gunn­ars­son telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

„Pútín er búinn að tapa stríðinu á víglínunni“
Innlent

17 ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn 12 ára stúlku

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn