Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Lenya er orðlaus yfir viðbrögðunum:„Verum góð við hvort annað því við vitum aldrei hvað er í gangi“

Lenya Rún Taha Ka­rim. Mynd/skjáskot. Stúdentablaðið.
Lenya Rún Taha Ka­rim. Mynd/skjá­skot. Stúd­enta­blaðið.

Lenya Rún Taha Karim er orðlaus yfir góðu viðbrögðunum sem hún hefur fengið eftir að viðtal við hana birtist á Rúv á fimmtudaginn. Þar opnaði hún sig um átröskun sem hún glímir við.

Í langri þakkar­færslu á Facebook segist Lenya Rún, vara­þingmaður Pírata og háskóla­nemi, vera orðlaus yfir þeim góðu viðbrögðum sem hún hefur fengið eftir að hún opnaði sig í viðtali sem birtist á Rúv í fyrradag, um átröskun sína og innlögn á Kleppi. Segir hún í færslunni að það sé alltaf áhætta að opna sig um geðræn vandamál en vonar að þetta geti hjálpað til við að útrýma fordómum gagnvart geðröskunum. Vonast hún einnig til að þetta hvetji fólk í sambærilegri stöðu til að sækja sér hjálp, „án þess að skammast sín“.

Sjá einnig: Lenya Rún vara­þingmaður var lögð inn á Klepp viku eftir Silfrið: „Ég tek brjál­æðiskast“

Þá talar hún einnig til aðstand­enda fólks með átröskun og segist finna til með þeim og segir stuðninginn algjör­lega ómissandi.

Færsluna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

„Ég er orðlaus yfir góðu viðbrögðunum sem ég hef fengið við viðtalinu á fimmtudaginn. Það er alltaf smá áhætta að opna sig um geðræn vandamál en ég vona innilega að þetta geti hjálpað til í átakinu við að útrýma fordómum gagnvart geðröskunum og hvatt fólk í sambærilegri stöðu til að leita hjálpar án þess að skammast sín.

Til aðstand­enda sem hafa leitað til mín: Ég finn til með ykkur og get ímyndað mér að það sé vont að horfa upp á manneskju sem þú elskar vera að neita sér um það eina sem hún þarf til að halda sér á lífi. Reiðis­köstin sem eru tekin og hegðunar­vandinn er ekki persónulegt gagnvart ykkur, heldur er þetta heilinn að slökkva á heila­stöðvunum sem sjá um tilfinningar til að spara orkuna í eitthvað annað. Stuðningur aðstand­enda til okkar sem glíma við þessi veikindi er gjör­samlega ómissanlegur, verið til staðar eins og þið eruð búin að vera að gera Til fólks sem hefur leitað til mín vegna þess að þau glíma við átröskun sjálf: Ég hvet ykkur eindregið til að leita upp á heilsu­gæslustöð þar sem næstu skref verða tekin. Hvort sem það eru tímar hjá sálfræðingi eða eftir­fylgni innan heilsu­gæslunnar eða meðferð hjá átröskunar­teymi Land­spítalans. Inngrip á fyrri stigum sjúk­dómsins er ótrúlega mikilvægt, mín helsta eftirsjá er að ég byrjaði ekki í meðferð af alvöru fyrr, hvort sem það hafi verið 10 árum fyrr eða 1 viku fyrr. Það er hægt að afstýra svo mörgu slæmu með því að leita sér hjálpar sem fyrst. Það er engin skömm í því að vilja vera við góða heilsu, það er sjálf­sagður hlutur.Að lokum vil ég bara taka fram að það eru fáir sem ég þekki sem hafa aldrei glímt við andleg vandamál. Verum góð við hvort annað því við vitum aldrei hvað er í gangi á bakvið tjöldin og sýnum stuðning þegar fólkið í kringum okkur er að ströggla, það þarf á hjálp að halda, ekki fordómum eða dómhörku.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi