Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Lögreglan rannsakar Gylfa áfram til 16. janúar

Gylfi Þór Sigurðsson
Gylfi Þór Sig­urðs­son

Rannsókn á meintu kyn­ferð­is­broti Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar, leik­manni Everton og íslenska karla­lands­liðs­ins í fót­bolta, hefur verið fram­lengd til 16. jan­úar. RÚV segir frá þessu í dag.

Gylfi verður því áfram laus gegn trygg­ingu fram til þeirrar dag­setn­ingar. Hann hafði áður verið laus gegn trygg­ingu til 16. októ­ber og var talið hugs­an­legt að þá kæmi í ljós hvort málið end­aði með ákæru eða væri látið falla niður. Svo varð ekki og biðin hefur verið lengd, eins og áður sagði.

Gylfi var hand­tek­inn í júlí í Manchester í Englandi, grun­aður um kyn­ferð­is­brot gegn barni.

Að vera laus gegn trygg­ingu merkir að eftir að við­kom­andi er hand­tek­inn og vistaður í fanga­geymslum, er hægt að greiða út trygg­ingu að ákveð­inni upp­hæð. Sé það gert er við­kom­andi laus og þarf ekki að sitja í fang­elsi út rann­sókn­ar­tím­ann.

Frelsið er þó tak­mörk­unum háð; sá hand­tekni sem sætir lög­reglu­rann­sókn má til að mynda ekki yfir­gefa land og þarf að hafa aðsetur á fyr­ir­fram ákveðnum stað. Sömu­leiðis þarf við­kom­andi að vera til taks hvenær sem er og lög­regla þarf ávallt að geta náð í hann.

Þetta á því að öllu óbreyttu við um Gylfa Þór fram til 16. jan­úar.

Eins og kunn­ugt er hefur Gylfi ekki verið val­inn í íslenska lands­liðs­hóp­inn frá því að málið kom upp. Hann var ekki heldur hluti af 25 manna hópi Everton og mun því ekki spila með lið­inu á næst­unni. Everton getur næst upp­fært leik­manna­hóp­inn í jan­úar þegar félags­skipta­glugg­inn opn­ast.

Hugs­an­legt er að ein­hver hreyf­ing verði komin á mál Gylfa þá. Everton gaf frá sér yfir­lýs­ingu í sumar þess efnis að leik­maður félags­ins hefði verið sendur í leyfi vegna lög­reglu­rann­sóknar, en stjórn félags­ins hefur þess utan ekki tjáð sig um málið.

Hingað til hafa engar form­legar upp­lýs­ingar feng­ist um það hvers eðlis brotið er sem Gylfi var hand­tek­inn fyrir, aðrar en þær að um sé að ræða kyn­ferð­is­brot gegn ólög­ráða ein­stak­lingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu