Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Í fréttum var þetta helst – Skrifstofuofbeldi, blóðmerar, skilnaður og Króna með gati

Hilmar lýsir einelti á skrif­stofunni: „Ég lamaðist úr skelfingu og kom varla upp nokkru orði“

Friðbert Trausta­son

Aðal­meðferð í máli Hilmars Vilbergs Gylfa­sonar, fyrr­verandi fjármála­stjóra Samtaka starfs­manna fjármála­fyrirtækja, gegn samtökunum fer fram í dag. Hilmar hefur nú stefnt SSF og krefst sjötíu og fimm milljóna króna í bætur frá SSF eftir að honum var vikið úr starfi eftir að hann kvartaði undan lang­varandi einelti og ofbeldi af hálfu yfirmanna sinna.

Sjá einnig: Hilmar hafnar því að SSF hafi boðið sátt: Krefst 75 milljóna í bætur vegna eineltis og ofbeldis

Mannlíf hefur undir höndum stefnu Hilmars en þar er að finna nákvæmar lýsingar á máls­atvikum.

Eftir­farandi texti er atburða­lýsing á því þegar Friðbert Traustason, formaður SSF, kom inn á skrif­stofu Hilmars og sýndi af sér ógnandi hegðun.

„Í kjölfarið, síðar þann dag réðst fyrirsvars­maður stefnda inn á skrif­stofu stefnanda í reiði­kasti með ógnandi tilburðum og ásökunum í garð stefnanda þar sem hann tók ergju sína út á stefnanda. Varð stefnanda verulega brugðið eftir þessar ákúrur og algerlega miður sín. Lýsir stefnandi því sjálfur á þann veg í greinar­gerð sinni sem hann vann að beiðni sálfræði­stofunnar Hugarheim, sbr. dskj. nr. 121.“

Sjá alla fréttina hér: Hilmar lýsir einelti á skrif­stofunni: „Ég lamaðist úr skelfingu og kom varla upp nokkru orði“

Faldar myndavélar sýna dýraníð: Heimildamynd um íslenskar blóðmerar

Falin myndavél sýnir viðurstyggilega meðferð á fylfullum merum í íslenska blóða­mera­iðnaðinum. Heimilda­mynd um málið frumsýnd á mánudaginn.

Á mánudaginn næsta verður heimilda­mynd þýsk/austurrísku dýraverndar­samtakanna TSB Tierschutzbund Zurich frumsýnd og verður hún þá öllum sýnileg á YouTube. Fjallar hún um íslenska blóð­mera­iðnaðinn. Hefur myndin verið í vinnslu síðustu 18 mánuði en myndefni sem þar er að sjá var tekið á þessu hausti en notast var við faldar mynda­vélar.

Blóð­mera­iðnaðurinn gengur út á að hirða allt að 40 lítra af blóði úr fylfullum merum og merum með folöld á 10 vikum frá sumri fram á haust til að vinna hormónið PMSG úr blóðinu. Hormónið er selt áfram til svínakjöts­fram­leiðenda til að auka frjósemi í svínaeldi.

Vegna hrottalegrar meðferðar meranna hefur Evrópu­þingið ályktað til Evrópska ráðsins að fram­leiðsla og notkun PMSG verði bönnuð í Evrópu. Ísland er eitt fárra landa sem heimila þetta.

Sjá alla fréttina hér: Faldar mynda­vélar sýna dýraníð: Heimildar­mynd um íslenskar blóðmerar

Smartland segir Gunnu Dís og Kristján, bæjarstjóra á Húsavík, vera að skilja

Samkvæmt frétt Smart­lands eru hjónin Kristján Þór Magnús­son og Guðrún Dís Em­ils­dótt­ir, eða Gunna Dís eins og hún er kölluð, að skilja.

Kristján Þór og Gunna Dís flutt­ust til Húsa­vík­ur þegar hann tók við starfi sveit­ar­stjóra, en áður hafi Gunna Dís getið sér gott orð hjá RÚV, bæði í út­varpi og sjón­varpi, og víst að margir sakna hennar úr fjöl­miðlunum.

Kristján Þór, sem er sveit­ar­stjóri í Norður­þingi, ku hafa til­kynnt sam­starfs­mönn­um sín­um fyr­ir stuttu að miklar breyt­ing­ar væru að verða á hans hög­um.

Samkvæmt sömu grein segir að Gunna Dís hyggist flytja aft­ur til Reykja­vík­ur og mögulega tek­ur hún upp þráðinn að nýju í fjöl­miðlum.

Kristján Þór hef­ur undan­farnar vikur verið í veikinda­leyfi, en tjáði starfs­mönn­um sín­um að hann hlakkaði til að koma aft­ur til starfa strax eftir áramót.

Ólafur varð kjaftstopp í Krónunni: „Þetta er nú meira ruglið“

Ólafi nokkrum blöskraði mjög í heimsókn sinni í lágvöruverslun Krónunnar á dögunum. Ástæðan var himinhá verð­lagning búðarinnar á lamba­hrygg sem hann langaði til að kaupa sér í matinn.

Ólafur fjallar um upplifun sína í fjölmennum hópi matgæðinga, Matartips!, á Facebook. Í Krónunni hugðist hann kaupa sér hálfan lamba­hrygg frá Norð­lenska sem vó 1,2 kíló en hætti snarlega við þegar hann brá stykkinu undir verðs­kannann. Þar kom í ljós að hryggurinn hálfi kostar 4.234 krónur eða 3.499 krónur kílóið. Þetta hefur Ólafur að segja um verð­lagninguna:

„Þetta er nú meira ruglið. “

Fjölmargir furða sig á verð­lagningu Krónunnar og Norð­lenska í þessu tilviki. Sigurður er einn þeirra. „Svakalegt ruglverð!“, segir Sigurður ósáttur.

Kristínu er afar brugðið. „Almáttugur. Sé ég get ekki keypt hrygg fyrir jólin. Hangikjöt kostar eitt nýra liggur við,“ segir Kristín.

Diljá er hugsi og veltir fyrir sér hvað ráði þessu háa verði búðarinnar. „Ég hugsa nú bara mest um, hvað þetta er alls ekki að skila sér til bænda þetta háa verð,“ segir Diljá.

Þórður hugsar á svipuðum nótum. „Milli­liðirnir, ábyggilega margir í eigu kvóta­greifa hirða allan ávinninginn,“ segir Þórður ákveðinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Ágreiningur um þrif, ræstiþjónustu og myndavélar í sameign fór fyrir kærunefnd
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli