Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Vændisbrotum fjölgar verulega milli ára

Kyn­ferð­is­brotum hefur fjölgað um 7% á fyrstu níu mán­uðum árs­ins

Til­kynn­ingum til lög­reglu um kyn­ferð­is­brot hefur fjölgað um 7% á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2025 miðað við með­al­tal síð­ustu þriggja ára, sam­kvæmt nýrri skýrslu rík­is­lög­reglu­stjóra. Sér­stak­lega vekur athygli að vænd­is­brotum hefur fjölgað veru­lega, eða úr 15 að með­al­tali síð­ustu ár í 35 mál á tíma­bil­inu.

Í skýrsl­unni kemur fram að alls hafi 459 kyn­ferð­is­brot verið til­kynnt til lög­reglu frá jan­úar til sept­em­ber, sem jafn­gildir um 50 málum á mán­uði. Flest brot voru til­kynnt í ágúst, eða 63 tals­ins. Til­kynn­ingum um kyn­ferð­is­brot fækk­aði tíma­bundið þegar heims­far­aldur kór­ónu­veiru stóð sem hæst, en hefur auk­ist á ný und­an­farin ár.

Af þeim brotum sem framin voru á árinu og þegar hafa verið til­kynnt, eru 156 nauðg­anir, 94 kyn­ferð­is­brot gegn börnum, 95 til­felli kyn­ferð­is­legrar áreitni eða staf­rænna brota og 29 blygð­un­ar­sem­is­brot. Þá voru 35 vænd­is­brot skráð á tíma­bil­inu, brot sem eru yfir­leitt upp­götvuð við frum­kvæð­is­vinnu lög­regl­unnar.

Flestir gerendur karlar – þolendur yfirleitt ungar konur

Samkvæmt skýrsl­unni voru 94% grun­aðra í kyn­ferð­is­brota­málum karlar, og tæp­lega 30% þeirra undir 25 ára aldri. Hvað nauðg­anir varðar var rúmur þriðj­ungur ger­enda yngri en 25 ára. Þolendur voru í 86% til­vika konur og tveir af hverjum þremur undir 25 ára aldri. Næstum helm­ingur þolenda, eða 47%, var undir 18 ára aldri.

Kynferðisbrot um helgar óbreytt – færri nauðganir í sumar

Í sumar voru 64 kyn­ferð­is­brot til­kynnt til lög­reglu sem áttu sér stað um helgar, svip­aður fjöldi og síð­ustu tvö ár. Nauðg­unum um helgar fækk­aði þó, 17 voru skráðar í ár sam­an­borið við 22 árið á undan. Sjö brot tengd­ust kaupum á vændi, en þau voru 10 í fyrra og ekk­ert sum­arið 2022.

Um 67% brot­anna voru til­kynnt á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en 33% á lands­byggð­inni, sem er svipuð dreif­ing og áður.

Upp­lýs­ingar um með­ferð kyn­ferð­is­brota í rétt­ar­kerf­inu má finna á ofbeld­is­gátt Neyð­ar­lín­unnar, 112.is, þar sem einnig er hægt að til­kynna brot og fá upp­lýs­ingar um úrræði vegna kyn­ferð­is­of­beldis.

Heild­ar­skýrsl­una má nálg­ast á vef lög­regl­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.
Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu