Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Lögreglumaður aumur í eistunum eftir punggrip konu

Konan neitaði sök bæði við rannsókn málsins og fyrir dómi

Lögreglumenn við störf
Lög­reglu­menn við störf Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Víkingur

Kona hefur verið dæmd í tveggja mánaða skilorðs­bundið fangelsi í Héraðs­dómi Reykja­víkur fyrir brot gegn vald­stjórninni og kynferðis­lega áreitni. Konan var sakfelld fyrir að hafa gripið um kynfæri lögreglu­manns þegar verið var að færa hana í fanga­klefa á lögreglu­stöðinni við Hverfis­götu í Reykjavík.

Atvikið átti sér stað í nóvember árið 2023. Konan hafði verið handtekin vegna brots gegn lögreglu­samþykkt Reykja­víkur og flutt á lögreglu­stöðina. Samkvæmt gögnum málsins var hún æst og óstýrilát við komuna, fylgdi ekki fyrir­mælum lögreglu og viðhafði bæði fúkyrði og kynferðislegt tal í garð lögreglu­manna.

Þegar færa átti konuna í fanga­klefa neitaði hún að fara þangað sjálf­viljug. Tveir lögreglu­menn tóku þá hvor um sína hönd hennar og leiddu hana inn í klefann. Samkvæmt framburði brotaþola losnaði önnur hönd konunnar úr taki hans og greip hún þá utan um kynfæri hans utanklæða og kreisti nokkuð fast. Lögreglu­maðurinn kvaðst hafa verið aumur í eistum í nokkurn tíma eftir atvikið.

Konan neitaði sök bæði við rannsókn málsins og fyrir dómi. Hún sagðist muna illa eftir atvikum vegna ölvunar en hafnaði því alfarið að hafa gripið um kynfæri lögreglu­mannsins. Þá sagðist hún ekki hafa haft ásetning til að eiga í átökum við lögreglu eða sýna af sér óviðeigandi kynferðis­lega hegðun.

Myndbands­upptökur úr fanga­geymslunni voru meðal sönnunar­gagna í málinu. Á þeim sást hönd konunnar losna úr taki lögreglu­mannsins og hún þreifa í átt að kynfærum hans. Ekki sást með skýrum hætti hvort hún greip um kynfæri hans en á annarri upptöku mátti sjá viðbrögð lögreglu­mannsins. Dómurinn taldi upptökurnar styðja framburð hans. Þá heyrðist konan viðhafa kynferðislegt tal við lögreglu­menn og sást reyna ítrekað að sparka til þeirra.

Dómurinn taldi framburð lögreglu­mannsins og annarra lögreglu­manna trúverðugan og studdan öðrum gögnum málsins. Var talið sannað hafið yfir skyn­samlegan vafa að konan hefði gripið um kynfæri lögreglu­mannsins og að háttsemin hefði verið framin af ásetningi. Hún var því sakfelld fyrir brot gegn vald­stjórninni og kynferðis­lega áreitni.

Við ákvörðun refsingar var meðal annars horft til þess að tæp þrjú ár voru liðin frá brotinu og að konunni yrði ekki kennt um þann drátt sem orðið hafði á meðferð málsins. Dómurinn taldi dráttinn ámælis­verðan. Þá hafði konan ekki brotið af sér eftir atvikið, eftir því sem séð varð.

Refsing hennar var ákveðin tveggja mánaða fangelsi en fullnustu refsingarinnar frestað og fellur hún niður að tveimur árum liðnum haldi konan almennt skilorð. Henni var jafnframt gert að greiða tæplega 698 þúsund krónur í málsvarnar­laun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi