Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Háskalegur framúrakstur vörubílstjóra Samskipa: „Ómægod – Fáviti!“ – SJÁÐU MYNDSKEIÐIÐ

Vörubíl á vegum Samskipa var ekið á háskalegan hátt. Minnstu mátti muna að stórslys hafi orðið á fólki. Mynd/skjáskot Facebook Arna Sjöfn Ævarsdóttir
Vörubíl á vegum Samskipa var ekið á háska­legan hátt. Minnstu mátti muna að stór­slys hafi orðið á fólki. Mynd/skjá­skot Facebook Arna Sjöfn Ævars­dóttir

Minnstu mátti muna að stór­slys hefði orðið þegar vöru­bíl með tengi­vagn frá Sam­skipum var ekið í fram­úr­akstri milli Borg­ar­ness og Mun­að­ar­ness laust eftir klukkan fjögur í dag.

Athæfi atvinnu­öku­manns­ins er lyg­inni lík­ast og við­brögð mynda­töku­mann­eskj­unnar leyna sér ekki: „Ómægod, Ómægod – Fáviti!“

Vörubíl Samskipa var ekið á öfugum vegar helm­ingi en snar­ræði öku­manna tveggja bíla sporn­uðu við að hörm­ung­ar­slys hefði orðið, ann­ars vegar öku­manni bíls úr mót­stæðri átt og hins vegar öku­manni bíls sem nauð­beyður veitti vöru­bílnum pláss á réttum veg­ar­helm­ingi. Arna Sjöfn Ævars­dóttir var far­þegi í bif­reið sem öku­maður Samskipa hafði tekið fram úr og náði hún mynd­skeiði af athæf­inu.

„Við sáum hann fyrir aftan okkur reyna og reyna að færa sig um akrein til þess að taka fram úr. Sáum við bíl­inn koma á móti en skil ég ekki hvers vegna hann sá bíl­inn ekki þar sem hann var á marg­falt stærri bíl,“ skrifar Arna Sjöfn í Facebookfærslu.

Arna Sjöfn tekur jafn­framt fram að umferð­ar­hraði hafi verið ágætur og þau verið á um 80 kíló­metra hraða á klukku­stund en hámarks­hraði á svæð­inu hafi verið 90. Af mynd­skeið­inu að dæma voru veð­ur­skil­yrði mjög góð.

„Vorkenni ég virki­lega fólk­inu sem kom keyr­andi á móti mann­inum sem rétt náði að skjóta sér frá og einnig þeim sem voru fyrir framan okkur á rauða bílnum sem var þrýst í það að sveigja sér næstum því útaf veg­inum til þess að bjarga sér frá stór­skaða.“

Ekki náð­ist sam­band við Samskip við vinnslu frétt­ar­innar en leitað verður við­bragða frá fyr­ir­tæk­inu.
Hér að neðan má sjá færslu Örnu Sjafnar Ævars­dóttur í heild:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar