Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Lalli sjúkraliði lýsir starfinu fyrir Svanhildi Hólm: „Ég hef séð limlest fólk engjast af kvölum“

„Okkur blöskraði bara hér um helgina þegar Svanhildur var að tjá sig í Silfrinu. Við höfum bara verið að hlæja að þessu og spyrja yfir­mennina hvernig við getum fengið þessar 800.000 kall. Og það hrista allir hausinn yfir þessu hér því þetta er ekki raun­veruleikinn.“

Þetta sagði Lárus Páll Birgisson sjúkra­liði á Land­spítalanum í samtali við Mannlíf og átti þá við Svanhildi Hólm Vals­dóttur sem sagði tilgangs­laust að hækka laun hjúkrunar­fræðinga.

Lárus, eða Lalli sjúkra­liði eins og hann er oft kallaður, sendi Mannlífi tölvupóst þar sem hann lýsti því versta sem hann hafi upplifað þau 17 ár sem hann hefur unnið sem sjúkaliði á Land­spítala Íslands. Þá lét hann einnig fylgja fjóra launa­seðla sem sýna mánaðar­kaup hans fyrir 100 prósent vinnu, eftir 17 ára starf. „Svona eru launin ef einhver er í vafa um það hver er að segja satt,“ sagði Lalli og bætti við að launa­seðlarnir séu frá fyrstu fjórum mánuðum síðasta árs því það sé síðasta árið sem hann hefur verið í fullri vinnu. Segist hann vera á dagdeild þannig að það eru engar auka­vaktir í boði.

Ein og sjá má á launa­seðlum Lalla neðar í fréttinni má sjá að hann hefur verið að fá milli 333.000 til 350.000 þúsund krónur fyrir 100 prósent vinnu sem sjúkra­liði við Land­spítalann en hann segist ekki kvarta, þrátt fyrir lág laun.

„Ég er ekkert að kvarta voðalega mikið af því að ég á ekki neitt. Ég á ekki konu og börn, ég á ekki hús og bíl og ekki neitt. Sko, fyrir aumingja er þetta alveg fínt en ef þú ætlar að vera einhver gildur borgari í samfélaginu og eiga heimili og eitthvað svoleiðis þá virkar þetta ekki.“

Þess má geta að framfærslu­viðmið einstaklings án barns er 202.414 kr. samkvæmt Umboðs­manni skuldara og er það án húsaleigu.

Hér fyrir neðan má lesa lýsingu Lalla á verstu augna­blikum vinnu hans á spítalanum:

„Ég heiti Lárus og starfa sem sjúkra­liði á Land­spítalanum. Frá því ég hóf störf hef ég fengið á mig alla þá vessa sem manns­líkaminn fram­leiðir, blóð, þvag, saur osfr. Ég hef stungið mig á óhreinum nálum og er daglega innan um allar pestir sem ganga. Það hefur verið hrækt á mig oftar en einu sinni og ég hef verið kýldur, skallaður og kyrktur. Ég hef séð limlest fólk engjast af kvölum, skaðbrennd börn og heila­slettur leka á gólfið. Verst eru þó hljóðin, þau sitja í manni lengur en það sem maður sér og lyktin, lyktin af rotnandi holdi gleymist aldrei. Örvinglaðir foreldrar eftir barnmissi, sjálfsvíg og aðrir harm­leikir.

Þetta hef ég allt séð og þurft að takast á við með því að bæla það niður svo ég geti haldið áfram að vinna. Í hvert skipti deyr lítill hluti af hjartanu og í dag er ég blessunalega kaldrifjaður eins og sönnum fagmönnum sæmir. Það þraukar enginn lengi þarna inni ef hann ætlar að taka svona hluti inn á sig til lengdar. Þetta er mann­skemmandi helvíti en trixið er að skemma réttu tilfinningarnar svo hægt sé að halda áfram með næsta verkefni.  Ekki gráta fyrr en þú ert kominn heim.

Allan tímann er maður svo meðvitaður um að ef ég fokka einhverju upp þá ber ég ábyrgð.  Allt frá litlum hlutum til manndráps af gáleysi og ég verð sóttur til saka ef verklagið er ekki eftir bókinni.  

Ég vildi bara sýna ykkur svart á hvítu hver 100% laun sjúkra­liða á Land­spítalanum eru eftir 17 ára starf á vígvellinum og læt nokkra launa­seðla fylgja með. Þið fjöl­miðlar hafið góðfúslegt leyfi mitt til að birta þessar launa­upplýsingar ef þið teljið þetta skipta einhverju máli í umræðunni um kjaramál heilbrigðis­starfsfólks.“

Hér má svo sjá launa­seðlana en ef smellt er á myndirnar stækka þær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi