Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Kjartan Magnússon: „Þessi atriði vill meirihlutinn ekki ræða þótt að þau séu ekki trúnaðarmál“

Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
Kjartan Magn­ús­son borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Kjartan Magnússon borgar­fulltrúi fyrir Sjálfstæðis­flokkinn segir í samtali við Mannlíf að „meirihlutinn leyfir loks umræðu um málefni Ljós­leiðara Orku­veitunnar í borgar­stjórn eftir að hafa bannað slíka umræðu á tveimur síðustu fundum, 20. desember og 3. janúar síðastliðinn.“

Hann segir að „ákvörðun meirihluta borgar­stjórnar um að neita mér og öðrum borgar­fulltrúum Sjálfstæðis­flokksins um að ræða málið, var skýrt brot á ákvæðum 27. greinar sveitar­stjórnar­laga og 34. greinar samþykktar og stjórn Reykja­víkurborgar.

Með því að aflétta umræddu umræðu­banni hélt ég að meirihlutinn myndi nú loks veita borgar­stjórn upplýsingar um viðskiptin og ræða þá stefnu­breytingu sem þau hafa í för með sér sem og áhrif þeirra á fjárhag borgarinnar.

Annað hefur komið á daginn.“

Kjartan nefnir að „ræður borgar­stjóra og formanns borgar­ráðs hafa verið innihalds­litlar og að mestu leyti rökstuðningur fyrir því af hverju áfram skuli ríkja leynd um viðskipti Ljós­leiðara OR og Sýnar og áhrif þeirra á fjárhag borgarinnar. Afar mikilvægt er þó að ræða málefni Ljós­leiðarans og Orku­veitunnar, ekki síst skulda­stöðu fyrir­tækjanna. Ljós­leiðarinn skuldar nú 14 milljónir króna.“

Með samningnum segir Kjartan að þá „hækki skuldirnar um að minnsta kosti þrjá milljarða til viðbótar. Ljós­leiðarinn kaupir nú stofnnet Sýnar á 3 milljarða króna. Í staðinn skuld­bindur Sýn sig til að kaupa þjónustu af Ljós­leiðaranum í 12 ár. Svo virðist sem um sé að ræða svokallaða skilyrta sölu.“

Kjartan segir að „ef um slíkt er að ræða ætti að upplýsa borgar­fulltrúa um það án undan­bragða. Eitt af yfir­lýstum markmiðum Sýnar með sölunni er að styrkja efnahag og lausafjár­stöðu sína. Við sölu er stofnnet Sýnar bókfært á 564 milljónir króna. Sölu­hagnaður Sýnar vegna kaupanna er því 2.436 milljónir króna og bókfærist að fullu við afhendingu. Að auki er áætlað að viðskiptin hafi jákvæð áhrif á rekstrar­kostnað Sýnar um 100 milljónir króna á ári, nettó.

Einnig að árleg fjár­festingar­þörf Sýnar lækki í kringum 120 milljónir króna yfir samnings­tímann. Búast má við að fjár­festingar­þörf Ljós­leiðarans hækki sem því nemur.“

Kjartan spyr:

„Á Orkuveita Reykja­víkur að stækka starfsvæði sitt, færa út kvíarnar í samkeppnis­rekstri og ráðast í áhættu­fjár­festingar á lands­byggðinni án undan­genginnar umræðu í borgar­stjórn?“

Hann segir að „þessi atriði vill meirihlutinn ekki ræða hér í borgar­stjórn þrátt fyrir að þau séu í sjálfu sér ekki trúnaðarmál. Í eigenda­stefnu Orkuveitu Reykja­víkur (4. kafla) er skýrt kveðið á um að meginstarfsvæði fyrir­tækisins sé Suðvestur­land. Tækifæri annars staðar séu skoðuð út frá hlutverki fyrir­tækisins, arðsemi og áhættu og skulu staðfest af eigendum áður en stofnað er til skuld­bindinga vegna þeirra. Þetta ákvæði eigenda­stefnu OR er þver­brotið í þessu máli,“ segir hann og bætir við:

„Í eigenda­stefnu Reykja­víkurborgar gagnvart B-hluta félögum (samþykkt í borgar­stjórn 3. maí sl.) er skýrt kveðið á um að eigenda­fyrirsvar (borgar­stjóri) skuli leggja mál, sem eru óvenjuleg eða mikils háttar fyrir borgarráð til samþykktar. Þetta ákvæði eigenda­stefnu Reykja­víkurborgar er einnig þver­brotið í þessu máli.

Sýnar­samningurinn er óvenju­legur í rekstri Ljós­leiðara OR enda gert ráð fyrir að farið verði í útrás um land allt með mark­vissum hætti í stað þess að sinna skilgreindu starfsvæði.“

Kjartan vill meina að samningurinn sé mikils háttar:

„Markmið Ljós­leiðara OR með honum er að byggja upp nýjan og öflugan lands­hring fjar­skipta. Þá er samningurinn mjög kostnaðar­samur enda er um að ræða einn stærsta viðskipta­samning í sögu borgarinnar. Á fundinum lagði ég fram eftir­farandi fyrir­spurnir fyrir hönd borgar­fulltrúa Sjálfstæðis­flokksins:

Óskað er eftir greinar­gerð um fjárhagsleg áhrif Sýnar­samningsins á fjárhag og skulda­stöðu Ljós­leiðarans, Orkuveitu­samstæðunnar og samstæðu Reykja­víkurborgar.

Óskað er eftir því að fá yfirlit yfir stærstu viðskipta­samninga Reykja­víkurborgar og fyrir­tækja hennar undan­farin tíu ár og greiðslur samkvæmt þeim.

Miðað verði við viðskipta­samninga og/eða greiðslur að fjárhæð yfir einum milljarði króna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi