Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Skólar á vegum GRÓ órjúfanlegur hluti af alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands

Árs­skýrsla GRÓ er komin út og þar kemur fram að útskrif­ast hafi 97 sér­fræð­ingar úr þjálf­un­ar­námi á vegum GRÓ

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra Árs­skýrsla GRÓ fyrir árið 2024 komin út Mynd: Víkingur

Árs­skýrsla GRÓ er komin út og þar kemur fram að alls hafi útskrif­ast 97 sér­fræð­ingar úr þjálf­un­ar­námi á vegum GRÓ – Þekk­ing­ar­mið­stöðvar þró­un­ar­sam­vinnu á árinu 2024.

Þar kemur fram að í lok árs höfðu 1.767 sér­fræð­ingar lokið fimm til sex mán­aða námi í skól­unum fjórum sem starf­ræktir eru á vegum GRÓ, það er Jafn­rétt­is­skól­anum, Jarð­hita­skól­anum, Land­græðslu­skól­anum og Sjáv­ar­út­vegs­skól­anum.

Þá styrkir GRÓ einnig útskrif­aða nem­endur til fram­halds­náms; luku sjö styrk­þegar slíku námi á árinu - tveir dokt­ors­prófi og fimm meistara­gráðu.

Nemendur Jafn­rétt­is­skóla GRÓ í náms­ferð um Suð­ur­land í fyrra

Vert er að minn­ast á að einnig hafi verið ýmis stutt nám­skeið haldin í sam­starfs­lönd­unum, sem rúm­lega 400 manns sóttu, og nýju net­nám­skeiði var hleypt af stokk­unum.

Í nýút­kominni árs­skýrslu GRÓ er greint frá starfi skól­anna fjög­urra, sem og því sem var efst á baugi í starfi GRÓ á árinu. GRÓ starfar undir merkjum Mennta-, vís­inda- og menn­ing­ar­mála­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNESCO).

Segir Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra að „skól­arnir sem starf­ræktir eru á vegum GRÓ hafa frá stofnun verið órjúf­an­legur hluti af alþjóð­legri þró­un­ar­sam­vinnu Íslands“ og segir hún einnig að „rætur þeirra ná aftur til átt­unda ára­tugar síð­ustu aldar, þegar Ísland var að stíga sín fyrstu skref sem veit­andi og sam­starfs­ríki í þró­un­ar­sam­vinnu eftir að hafa sjálft þegið þró­un­ar­að­stoð örfáum árum áður.“

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir

Bent er á að eitt sinn hafi Ísland verið á meðal fátæk­ustu ríkja Evrópu, og „byggir sú vel­sæld sem tek­ist hefur að skapa hér á landi að miklu leyti á fram­þróun á þeim sviðum sem skól­arnir starfa á“ segir utan­rík­is­ráð­herra að og nefnir einnig að „reynsla okkar og sér­þekk­ing getur þannig skipt miklu máli til að efla sjálf­bæra þróun í öðrum löndum og stuðlað að fram­gangi heims­mark­miða Sam­ein­uðu þjóð­anna.“

Í skýrsl­unni nýút­komnu er einnig að finna við­auka um starf hvers og eins skóla sem og sögur af starfi nem­enda eftir útskrift. Og einnig „dæmi um hvernig þeir hafa nýtt þjálfun­ina til góðs í heima­löndum sínum.“

Allar upp­lýs­ingar um starf árs­ins eru færðar inn í árang­urs­ramma þar sem umfang starf­sem­innar er sett fram á sam­ræmdan hátt og á „meðal helstu verk­efna sem GRÓ vann að í fyrra var að móta stefnu um hvernig megi auka stuðn­ing við nem­endur eftir útskrift og hvetja útskrif­aða nem­endur til stofn­unar sam­taka í heima­löndum sínum“ því þannig geti „nem­endur unnið saman að því að miðla þekk­ingu sinni og aflað sér nýrrar þekk­ingar, auk þess að efla tengsl þeirra við íslensk sendi­ráð í sam­starfs­lönd­unum og svæð­is­skrif­stofur UNESCO“ segir Þor­gerður Katrín.

Einnig kemur fram að viða­mikil óháð úttekt fyr­ir­tæk­is­ins GOPA, sem utan­rík­is­ráðu­neytið lét gera árið 2024, stað­festi góðan árangur af starf­inu:

„Helsta nið­ur­staða úttekt­ar­innar, sem tók til tíma­bils­ins 2018-2023, var að skól­arnir hafi með skil­virkum hætti stutt við ungt fag­fólk og sam­starfs­stofn­anir í 76 ríkjum á tíma­bil­inu og þannig náð til­ætl­uðum árangri í að gera útskrif­uðum nem­endum kleift að vinna að heims­mark­miðum Sam­ein­uðu þjóð­anna“ og þá hafi þjálfun er nem­endur hlutu skapað „grund­völl fyrir þá til að til­einka sér nýja þekk­ingu, hæfni og aðferðir“ sagði Þor­gerður Katrín að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.
Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu