Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Alexandra lætur Trump finna til tevatnsins

„Ég er nátt­úru­lega löngu hætt að vera hissa á því hvað þetta sé hrika­legur og vit­laus maður.“

Alexandra Briem
Alex­andra Briem Alex­andra er afar ósátt við orð Bandraíkja­for­seta

Alex­andra Briem, borg­ar­full­trúi Pírata, lætur Donald Trump Banda­ríkja­for­seta harð­lega finna fyrir því í Facebook-færslu í kjöl­far ummæla hans um for­mann lands­stjórnar Græn­lands. Þar segir hún algjör­lega galið að for­seti sem hafi haft áform um að taka yfir Grænland í meira en ár viti ekki einu sinni hver leið­togi lands­ins sé.

„Ég er nátt­úru­lega löngu hætt að vera hissa á því hvað þetta sé hrika­legur og vit­laus maður. En það er alveg galið að vera búinn að vera með það á heil­anum í meira en ár að taka yfir Grænland, með öllum ráðum og hvað sem Græn­lend­ingum sýn­ist, og vita ekki einu sinni hver er for­maður Lands­stjórnar Græn­lands,“ skrifar Alex­andra og bætir við að slíkar upp­lýs­ingar ættu að vera sjálf­sagðar: „Myndi það ekki hljóta að vera í fyrsta upp­lýs­inga­pakk­anum sem maður skoð­aði við að pæla í þessu? Eða amk. vera reglu­lega nefnt þegar verið væri að skoða sviðs­myndir eða velta upp mögu­leikum?“

Hún segir þetta lýsandi fyrir vinnu­brögð Trump og hvernig hann nálgist ákvarð­ana­töku. „Stað­reyndin er nátt­úru­lega að hann skoðar hvorki upp­lýs­inga­pakka né pælir í sviðs­myndum eða hlustar á kynn­ingar eða ræðir hlut­ina á dýpt­ina. Hann segir bara hvaða vit­leysu sem honum dettur í hug,“ skrifar hún.

Alex­andra vitnar beint í nýleg ummæli Trump, sem féllu þegar hann var spurður út í yfir­lýs­ingu Jens-Frederik Nielsens, for­manns lands­stjórnar Græn­lands. Nielsen hafði sagt að ef velja þyrfti milli Banda­ríkj­anna og Dan­merkur myndi Grænland ávallt standa með Danmörku.

„Trump for­seti var svo spurður að því í nótt hvað honum fynd­ist um nýj­ustu yfir­lýs­ingu Jens-Frederik Nielsens, for­manns græn­lensku lands­stjórn­ar­innar. Nielsen lýsti því yfir að ef valið þyrfti að standa á milli Banda­ríkj­anna og Dan­merkur yrði Danmörk ávallt fyrir val­inu,“ skrifar Alex­andra áður en hún birtir orð for­set­ans orð­rétt:

„Það er hans vanda­mál. Ég er ósam­mála honum. Ég veit ekki hver hann er og ég veit ekk­ert um hann. En þessi afstaða verður stórt vanda­mál fyrir hann,“ sagði Banda­ríkja­for­seti í gær, spurður út í ummæli Nielsens.

Að mati Alexöndru und­ir­strika þessi orð alvar­leika máls­ins og þá ábyrgð­ar­leysi sem hún segir ein­kenna for­seta Banda­ríkj­anna þegar kemur að alþjóða­málum og sam­skiptum við önnur ríki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

„Ég á betra skilið, allir innflytjendur eiga betra skilið og allir Íslendingar eiga betra skilið en þetta.“
  • Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

  • Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

  • Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

  • „Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“