Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

„Ég man ennþá bragðið af byssuhlaupinu“

Mummi Týr glímdi lengi við sjálfsvígs­hugsanir

Mummi Týr
Mummi Týr Mummi hefur margar fjör­urnar sopið Mynd: Aðsend

Mummi Týr Þórarinsson er eilífðar­töffari sem djöflaðist í gegnum fyrri hluta ævinnar í drykkju, dópi og veseni og var með sjálfsmorðs­hugsanir í mörg ár. Hann man enn eftir bragðinu af hlaupi hagla­byssunnar þegar hann ætlaði að ljúka þessu. Hér fyrir neðan má sjá brot úr einka­viðtali Mannlífs við Mumma, þar sem hann segir frá sjálfsvígs­hugsunum sínum sem hann glímdi við í fjöldi ára.

Bragðið af byssuhlaupinu

Hann var með sjálfsmorðs­hugsanir frá unglings­árum sem fylgdu honum inn í fullorðisárin. Hann segir frá atviki því tengdu.

„Ég var með hagla­byssu inni í einhverju herbergi sem ég leigði og ég man ennþá bragðið af byssu­hlaupinu. Mér fannst alltaf eitthvað meira bíða mín heldur en að hverfa. Þó það væri engin eftir­spurn eftir mér þá trúði ég því ekki að þetta gæti endað svona. Þannig að mínar tilraunir til sjálfs­vígs voru algjör­lega í einrúmi og ég talaði aldrei um þær. Svo byrjuðu vinirnir að deyja af slysförum og ofskammti og jarðar­förunum fór að fjölga og ég fylltist alltaf af sorg af því að þetta gat verið ég líka.“

Jú, hann man ennþá bragðið af hlaupinu af hagla­byssunni. Hvað stoppaði hann í að taka í gikkinn? Enda þetta? Drepa sjálfan sig?

„Það var eitthvað „moment of clarity“. Fyrst hugsaði ég að aðkoman yrði hræðileg. Þetta var hagla­byssa þannig að hausinn yrði á veggnum fyrir aftan rúmið mitt. Það var fyrsta meðvitaða hugsunin. Svo hugsaði ég að það hlyti að vera eitthvað stærra í þessu lífi heldur en þetta.“

Hvað er dauðinn í huga Mumma Týs?

„Ég er svo mikill spírítisti. Ég veit að það er eitthvað stærra af alheims­vitundinni heldur en holdið og þetta skrifborð sem ég sit við og eitthvert tölvu­drasl.“

Mummi segir að ótti við dauðann sé eðlislæg viðbrögð mannsins og hluti af sjálfs­bjargar­hvötinni. Sjálfur hafi hann þó aldrei litið á dauðann sem endapunkt heldur frekar sem upphaf að einhverju nýju. Sú sannfæring byggist ekki á áþreifanlegum sönnunum heldur á eigin tilfinningu og lífs­reynslu. Að hans mati sé tilveran stærri og dýpri en það sem sjáist á yfir­borðinu og hann lýsir þeirri trú með hugtakinu „ljósið“. Hann segist því vera sann­færður um að dauðinn marki upphaf nýs ferðalags fremur en endalok.

„Ég hef nokkrum sinnum veikst mjög illa og samkvæmt öllum líkindum hefði ég átt að vera dauður mörgum sinnum út af aðstæðunum sem ég var kominn í og félagar mínir voru að deyja lengi vel. Gamlir fíklar. Einhvern veginn náði ég þessum aldri.

Eins og ég sagði er dauðinn upphaf að nýju ferðalagi og ég held að það sé miklu erfiðara fyrir aðstand­endur heldur en þann sem deyr. Þannig að dauðinn hræðir mig ekki. Hann er ekki ógnvekjandi. Það er jafn­heilbrigt að deyja eins og að fæðast. Ég hef grúskað mjög mikið í þessum andlegu málum og séð hluti og skynjað hluti og það hefur verið fullt af skrýtnum uppákomum í mínu lífi þar sem ég hef stundum haldið að ég væri að missa það.“

Mummi segist sann­færður um að annað ferðalag taki við eftir dauðann. Hann vísar meðal annars til þess að tveir miðlar, sem hafi ekki þekkst og rætt við hann við ólík tækifæri, hafi hvor um sig sagt honum að hann hefði verið óheiðarlegur í fyrri lífum. Að hans sögn styrkti það enn frekar þá trú hans að tilveran nái út fyrir eitt líf og að eitthvað taki við að því loknu.

„Ég var sem sagt bullandi óheiðarlegur og ég hikaði ekki við að fjarlægja fólk ef það var fyrir áformum mínum en ég var alltaf rosalega smart í tauinu. Og í þessari jarðvist er ég að læra heiðar­leika og ég er sennilega heiðarlegasti maður sem ég veit um. Þá er ég ekki að meina að ég sé ekki að stela veskjum heldur á ég við að ég sé ein af tilfinninga­lega heiðarlegustu manneskjum sem ég veit um af því að ég er sannur hver ég er. Ég er ekkert að sýna dúdda í íbúðinni við hliðina aðra hlið heldur en ég sýni konunni minni. Ég verð að vera sannur af því að mig langar ekki að koma aftur og þurfa að labba þessa leið aftur. Þannig að dauðinn fyrir mér er ekki endalok heldur upphaf að einhverju öðru.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Á annatíma á flugvöllum geta tafir raskað ferðaáætlunum.

„Niður­lægjandi að smækka fólk niður í tölur“

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Af hverju getur lyktin af makanum verið svona ómótstæðileg?

Vigtuð vikulega og sett á matarplan aðeins tíu ára gömul