Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Var Bítlalagið svar við spænskum slagara? Nýr hlaðvarpsþáttur Jóns Sigurðar í loftið í dag

Paul McCartney
Paul McCartney

Árið 1967 sló unga tónskáldið Aute í gegn á Spáni með laginu Halelúja númer 1. Þar er spurt stórra spurninga á við það sem Bob Dylan hafði gert í sínum lögum árin þar á undan. Lagið var ekki aðeins vinsælt í heima­landinu því ári síðar gerði þjóðlagarokkarinn Ed Ames lagið vinsælt í sínum flutningi og auðvitað með ensku texta. Þar ber það titilinn Who Will Answer enda spurningarnar áleitnar og tímarnir viðsjár­verðir þegar heims­byggðin óttaðist heimsendi þar sem óvinveitt stór­veldin voru komin með kjarnorku­vopn sem tortýmt gátu veröldinni. Árið 1969 tóku síðan Bítlarnir upp lagið Let It Be en þar sem segir meðal annars: There will be an answer, let it be (Því er til að svara, láttu það eiga sig.) Árið 2009 útskýrði Aute að framkvæmda­stjóri útgáfu­fyrirtækis, en hann nefnir engin nöfn í því sambandi, hefði tjáð sér að Paul McCarteny hefði viljað svara þessu áleitna lagi sínu með laginu Let It Be. „Mitt lag var spurningin,“ sagði Aute, „og Let It Be var svarið.“

Aute

Þessi full­yrðing gengur reyndar í berhögg við það sem Paul hefur sjálfur sagt um tilurð lagsins en á rúntinum með James Corden í þættinum Carpool Karaoke árið 2018 sagði bítillinn að látin móðir hans hefði birst honum í draumi þar sem hún hughreysti hann og sagði að allt yrði í lagi, hann skyldi bara leyfa hlutunum að hafa sinn gang. Hún hét Mary sem kemur heim og saman við efni textans sem talar um Mother Mary. Þó er ekki loku fyrir það skotið að lag Aute hafi vakið Paul til umhugsunar þó móðir hans hefði svo síðar gripið inní ferlið.

Aute, sem var með frægari tónlistar­mönnum Spánverja, lést árið 2020 og er talið að kóróna­veiran hafi riðið honum að fullu. Auk þess að vinna við tónlist gaf hann út fjölda ljóðabóka, leik­stýrði kvik­myndum og gat sér gott orð sem myndlistar­maður. Hann er gerður að umtals­efni í hlaðvarpi Jóns Sigurðar, Rúntað á Rucio, en skáldið Carlos Martínez Aguirre lét Aute eftir geisla­disk með lögum sem hlaðvarps­stjórn­andinn sjálfur hafði samið við ljóð hans árið 1998. Aute gerði ekkert með þá tónlist og spyr Jón Sigurður hvað olli og þar kemur bítilinn við sögu. Lög þeirra Jóns og Carlosar hafa aldrei verið gefin út en mörg þeirra voru flutt af frábærum íslensku tónlistar­mönnum um árabil í Salnum í Kópavogi og víðar. Um þetta má heyra í nýjasta hlaðvarps­þætti Jóns Sigurðar. Þar fá tvö þessara laga að hljóma í flutningi söngvarans Gísla Magna og annarra frábærra tónlistar­manna. Þátturinn birtist á Mannlif.is um klukkan 15:30 í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi