Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Stór framfaraskref stigin í þágu kennslu og rannsókna

Jón Atli Bene­dikts­son frá­far­andi rektor Háskóla Íslands seg­ist vera „þakk­látur“ fyrir það mikla traust sem honum „hefur verið sýnt en líka stoltur yfir því sem hefur áunn­ist“ á þeim tíu árum sem hann var rektor

Jón Atli Benediktsson
Jón Atli Bene­dikts­son Rektor kveður

Jón Atli Bene­dikts­son, frá­far­andi rektor Háskóla Íslands, sendir þakkir og góðar kveðjur eftir tíð sína sem rektor og þegar hann lítur til baka yfir síð­ustu tíu ár í starfi sínu sem rektor Háskóla Íslands fyllist hann „djúpu þakk­læti fyrir það mikla traust sem mér hefur verið sýnt en líka stolti yfir því sem hefur áunn­ist.“

Hann segir það „hafa verið ein­stök for­rétt­indi að leiða þetta öfl­uga háskóla­sam­fé­lag í sam­starfi við starfs­fólk og nem­endur sem hafa styrkt stöðu Háskól­ans sem leið­andi vís­inda- og mennta­sam­fé­lags, ekki bara á Íslandi heldur einnig á alþjóða­vísu“ og bætir því við að „í sam­ein­ingu höfum við mótað og fylgt stefnu í þágu þekk­ingar, nýsköp­unar og sjálf­bærni. Við höfum eflt kennslu og rann­sóknir, þróað nýjar náms­leiðir í takt við kröfur atvinnu­lífs og sam­fé­lags auk þess að inn­leiða staf­ræna kennslu­hætti sem miða að auknu aðgengi, gæðum og sveigj­an­leika í námi.“

Jón Atli segir að þannig hafi verið stutt við nýsköpun og frum­kvöðla­starf og stuðlað að frek­ari fram­þróun íslensks atvinnu­lífs“ og þá höfum við „bætt aðstöðu og umbylt Sögu hér á háskóla­svæð­inu sem verður mið­stöð mennta­vís­inda auk þess að hýsa marg­vís­lega aðra starf­semi. Einnig höfum við tekið stór fram­fara­skref í upp­lýs­inga­tækni og miðlun í þágu kennslu og rann­sókna.“

Hann telur að rann­sókna­starf Háskól­ans hafi „aldrei verið blóm­legra enda teflir HÍ fram öfl­ugu vís­inda­fólki sem leggur sitt af mörkum til lausnar á brýnum áskor­unum, ekki bara hér heima heldur líka um allan heim“ og segir hann enn­fremur að „við höfum lagt áherslu á jafnt aðgengi allra að námi“ og einnig unnið eftir grunn­gildum um „akademískt frelsi, jafn­rétti og fag­mennsku.“

Und­an­farin ár hafa sýnt fram á hversu mik­il­vægt það er að standa vörð um frelsi til rann­sókna og leit­ina að sann­leik­anum segir Jón Atli og vill meina að Þetta séu „horn­steinar háskóla­starfs­ins og allrar lýð­ræð­is­legrar umræðu og gleymum ekki að standa vörð um þessi grunn­gildi nú þegar blikur eru á lofti víða um heim.“

Hann vill að lokum „þakka öllum fyrir seiglu, sam­heldni og óeig­in­gjarnt starf, ekki síst á tímum þegar heims­far­aldur gekk yfir sem ógn­aði ekki bara öllu starfi hér heldur líka lýð­heilsu heims­byggð­ar­innar allrar. Þá kom skýrt í ljós hversu mik­ils virði það er að stunda rann­sóknir sem vörð­uðu leið­ina út úr þess­ari vá.“

Jón Atli sendir að lokum nýjum rektor, Silju Báru R. Ómars­dóttur, góða kveðju með ósk um „vel­gengni í starfi og ég hvet ykkur öll til að leggj­ast á árarnar með henni við að gera góðan háskóla betri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Á bol mannsins stóð „Palletsign Acton“, en lögreglan virðist hafa lesið þar nafn samtakanna Palestine Action.
Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu