Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Sigríður Dögg fær samúð

Sigríður Dögg Auðunsdóttir
Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir

Sigríður Dögg Auðuns­dóttir, frétta­maður Ríkis­útvarpsins og formaður Blaðamanna­félags Íslands, er í nokkrum vanda vegna yfir­lýsinga Páls Vilhjálms­sonar, kennara við Fjölbrautar­skólann í Garðabæ, sem fullyrðir að hún hafi sloppið með skrekkinn eftir að hafa skotið undan tugmilljónum frá skatti. Gerð var sátt um „endur­álagningu“ eins og Sigríður Dögg upplýsir á Facebook-síðu sinni án þess að skilgreina málið nánar eða staðfesta upphæðir. Jafnframt hraunar hún yfir Pál sem hún segir vera dæmdan æruníðing og samkvæmt því ekki marktækan. „Við hjónin fengum endur­álagningu opinberra gjalda vegna útleigu­tekna fyrir nokkrum árum og greiddum þá skatta …,“ skrifar Sigríður Dögg. Páll svarar þessu með full­yrðingunni „Sigríður Dögg játar skattsvik“ sem er gefur færi á að fá hann dæmdan öðru sinni fyrir meiðyrði, ef rangt reynist.

Margir inan fjölmiðla­stéttarinnar hafa samúð með Sigríði formanni. Sumir sýna það með því að þegja yfir málinu og meintum skatts­vikum en aðrir lýsa stuðningi við hana. Þeirra á meðal er Friðrik Þór Guðmundsson, fyrr­verandi formaður siða­nefndar blaðmanna, sem stendur með sinni konu. „Eltinga­leikur Mogga­ritstjórans við bábiljur Páls Vilhjálms­sonar halda hins vegar sjálfsagt áfram með einum eða öðrum hætti, faglegum blaða­mönnum fjöl­miðilsins til tjóns …,“ skrifar hann.

Sigríður hefur hunsað spurningar blaða­manns Mannlífs um að opinbera nákvæmlega hvert vandamál hennar gagnvart skattinum var og þá upplýsa hvort og í hverju Páll sé að segja óstatt. Þögnin ein er svarið. Sjálf er hún þekkt fyrir hörku í starfi sínu og lætur viðmælendur sína ekki komast upp með neinn moðreyk.

Málið allt er hið vandræðalegasta fyrir RÚV sem á einhverjum tíma­punkti kallaði mál á borð við þetta skattsvik. Fyrir liggur að ef skúrkurinn Páll hefur rétt fyrir sér þá er Sigríði Dögg hvorki sætt í Blaðamanna­félaginu eða í starfi sínu hjá RÚV. Málið er allt hið vandræðalegasta þar hún sýnir á spilin sín. Undir í málinu er heiður Blaðamanna­félags Íslands og Ríkis­útvarpsins og ný viðmið í flutningi frétta þegar um er að ræða skatta­sniðgöngu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Slúður