Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Páll gerir grín að Heimildinni: „Hafa um langa hríð verið á undanþágu frá almennu siðferði“

Páll Vilhjálmsson
Páll Vil­hjálms­son

Páll Vill­hjálmsson, kennari við Fjölbrautar­skólann í Garðabæ, rífur hinn nýja miðil Kjarnans og Stundarinnar, Heimildina í sig í nýjustu blogg­færslu sinni.

Framhalds­skóla­kennarinn umdeildi, Páll Vilhjálmsson, er iðinn við að halda uppi vörnum fyrir Þorstein Má Baldvinsson og Samherja á bloggsíðu sinni. Virðist hann hafa hinu mestu óbeit á hinum sálugu fjöl­miðlum Stundinni og Kjarnanum sem hvað harðast hafa skrifað fréttir um meinta glæpi Samherja í Namibíu. Þá hefur hann uppnefnt starfs­fólk Ríkis­útvarpsins og lýst þeim sem glæpa­mönnum. Vinnustað þeirra uppnefnir hann sem Glæpa­leiti.

Í nýju blogg­færslunni gerir Páll meinfýsið grín að nýja miðlinum Heimildin sem varð til við samruna Kjarnans og Stundarinnar. Eftirtektar­vert er að hann fullyrðir að Kjarninn og Stundin hafi verið á leið í gjaldþrot þegar ársreikningar fyrir­tækjanna sýna allt annað. Lesa má færsluna hér fyrir neðan:

„Skip­stjórinn og stolin heimild Stundarinnar og Kjarnans

Stundin og Kjarninn voru á kenni­tölum á leið í gjaldþrot. Páll skip­stjóri Steingrímsson, sem varð fyrir byrlun og gagna­stuldi, er með sterkt mál gegn miðlunum tveim, sem birtu stolin einkagögn hans. Nýja útgáfan fær nafnið Heimildin. Við hæfi þar sem stolin heimild varð Stundinni og Kjarnanum að falli.

Undanþágu Samkeppnis­eftirlitsins þurfti til að sameinast. Einnig við hæfi þar sem miðlarnir tveir hafa um langa hríð verið á undanþágu frá almennu siðferði.

Þrír sakborningar í lögreglu­rannsókn vegna byrlunar, gagna­þjófnaðar og brota á friðhelgi einkalífs eru á ritstjórn nýja miðilsins. Ef Helga Seljan er bætt við, en hann verður líklega vitni í væntanlegu dómsmáli, er þriðjungur ritstjórnarinnar tengd lögreglu­rannsókn.

Ritstjórn hinna grunuðu stefnir að ,,óháðri, vand­aðri, gagn­rýn­inni og upp­­­bygg­i­­legri aðhalds­­­blaða­­mennsku.“

Fyrirséðir efnis­þættir ritstjórnar hinna grunuðu

  • Hvernig skal byrla og stela og fá blaðamanna­verðlaun fyrir vikið
  • Bróðir minn sakborningurinn, eftir Ingibjörgu Dögg ritstjóra
  • Flótti frá rétt­vísinni, hagnýt ráð byggð á reynslu
  • Sértu jaðar­miðill, gerðu bandalag við RÚV
  • Samþætting vinnslu á glæpum milli ákæru­valdsins og fjölmiðla, Ingi Freyr skrifar
  • Blaðamenn og almenn hegningarlög, frétta­skýring
  • Hvernig skal nýta sér andleg veikindi heimildar­manna – eftir rannsókna­ritstjóra
  • 3 aðferðir til að þagga niður í gagnrýni, raðfrétt Þórðar Snæs
  • Starfs­öryggi sakborninga á RÚV, aðsend grein eftir Þóru Arnórs

Blaða­mennirnir leita ekki langt yfir skammt að efni. Heimildir fyrir ofan­greindum efnis­þáttum eru allar inni á ritstjórninni. Nafn og aðdragandi nýja miðilsins mynda ritstjórnar­stefnuna: kennitölu­flakk með undanþágu frá heimildum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi