Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Gleðimaður missti stjórn á sér og réðst á dyravörð

Lögreglan að störfum í miðborginni Mynd/Lára Garðarsdóttir
Lög­reglan að störfum í mið­borg­inni Mynd/Lára Garð­ars­dóttir

Mikið var um ölvun fólks í nótt og hafði lög­reglan í nógu að snú­ast vegna fólks sem var ýmist sjálfu sér eða öðrum hættu­legt. Sumir óku bif­reiðum sínum án þess að hafa til þess rænu eða getu til þess að halda fullri athygli. Einn hinna ölv­uðu brá sér á raf­magns­hlaupa­hjól og datt án þess þó að stórslasast. Lög­reglan mun senda honum sekt­ar­boð.

Ökumaður sem reynd­ist undir áhrifum fíkni­efna og sviptur öku­rétt­indum stöðv­aður í aust­ur­borg­inni. Hans bíður há sekt. Óvenju­lega mik­ill fjöldi annnarra drukk­inna öku­manna lenti í klóm lög­reglu í nótt og þarf að gjalda fyrir athæfi sitt eftir atvikum með því að greiða sektir og missa öku­rétt­indi.

Í mið­borg­inni missti maður stjórn á sér í gleð­inni á veit­inga­stað. Hann réðst á dyra­vörð og var hand­tek­inn og vistaður í fanga­klefa. Annar gleði­maður fór þvert á allar reglur og trufl­aði lög­regl­una við störf sín. Hann lét ekki segj­ast þrátt fyrir til­mæli og var á end­anum hand­tek­inn. þar sem hann hindr­aði störf lög­reglu og fór ekki að fyr­ir­mælum. Hann var óvið­ræðu­hæfur og í ann­ar­legu ástandi. Nið­ur­staðan varð sú að læsa hann inni fanga­klefa þar til hann kemur úr óminn­is­á­stand­inu og hægt verður að taka skýrslu af honum.

Í aust­ur­borg­inni var inn­brots­maður hand­tek­inn á vett­vangi. Hann var í ann­ar­legu ástandi og læstur inni. Með morgn­inum verður tekin af honum skýrsla.

Umferð­ar­slys varð í Hafn­ar­firði þegar bif­hjól og bif­reið lentu í árekstri. Ökumaður bif­hjóls­ins var fluttur á bráða­mót­töku með sjúkra­bif­reið en ekki vitað hversu mikið hann slas­að­ist. Engan sak­aði í bif­reið­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar