Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Máni hótaði að stinga mann og neyddi hann til að borga

Máni var einnig sakfelldur fyrir líkams­árás á fyrr­verandi sambýlis­konu sína

Héraðsdómur Reykjavíkur
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Máni Ramzy Norðfjörð Secka hefur verið dæmdur í 15 mánaða fangelsi í Héraðs­dómi Reykja­víkur fyrir rán, líkams­árás, fíkniefna- og vopna­lagabrot, umferðar­lagabrot og tilraun til brots gegn friðhelgi einkalífs. Dómurinn var kveðinn upp 11. september.

Máni var meðal annars sakfelldur fyrir rán á skemmtistað í Reykjavík. Þar neyddi hann mann til að millifæra 50 þúsund krónur inn á reikning vinar síns með hótun um líkamlegt ofbeldi. Brota­þolinn bar fyrir dómi að Máni hefði hótað að stinga hann og hefði hann því ekki þorað annað en að millifæra fjár­hæðina.

Máni hélt því fram að um greiðslu fyrir tvö grömm af kókaíni hefði verið að ræða. Dómurinn taldi þá skýringu ótrú­verðuga og lagði framburð brotaþolans til grund­vallar.

Máni var einnig sakfelldur fyrir minni­háttar líkams­árás á fyrr­verandi sambýlis­konu sína. Dómurinn taldi sannað að hann hefði slegið hana í hægri upphandlegg og efri vör. Hann var hins vegar sýknaður af alvarlegri ásökunum um annað ofbeldi gegn henni, meðal annars um að hafa tekið hana hálstaki, kýlt hana og kastað rafsígarettu í andlit hennar.

Þá var Máni sakfelldur fyrir að hafa tekið farsíma konunnar og reynt að komast inn í hann til að hnýsast í einka­málefni hennar. Ákæru um eigna­spjöll vegna skemmda á símanum og bifreið hennar var vísað frá dómi.

Máni játaði jafnframt fíkniefna- og vopna­lagabrot auk þess að hafa ekið án ökuréttinda og undir áhrifum fjölda fíkniefna og lyfja. Hann var sviptur ökuréttindum í 18 mánuði.

Við ákvörðun refsingar var meðal annars horft til fyrri dóms Mána og þess að hann hefði rofið skilorð.

Mána var jafnframt gert að greiða fyrr­verandi sambýlis­konu sinni 250 þúsund krónur í miska­bætur auk vaxta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi