Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Sextán ára stúlka á Gaza lætur pensilinn tala fyrir börnin

Yara Youssef Abu Kweik hellir til­finn­ingum sínum í list­ina

Verk eftir Yöru
Verk eftir Yöru Yara notar list­ina til að takast á við sorg­ina Mynd: YouTube-skjáskot

Yara Youssef Abu Kweik, sextán ára stúlka frá Gaza, vinnur úr til­finn­ingum sínum með því að mála senur sem end­ur­spegla þján­ingar dag­legs lífs hennar.

Fyrir börn Gaza, sem eru bæði fórn­ar­lömb og vitni að ólýs­an­legu ofbeldi, hefur meira en tveggja ára stríði Ísraels gegn svæð­inu, sem lýst er sem þjóð­ar­morði, skilið eftir djúp sár, bæði lík­am­leg og and­leg, sem munu vara lengi eftir að átök­unum lýkur.

YaraListin á hug hennar allan

Tugir þús­unda barna hafa misst for­eldra og systk­ini, mörg hafa orðið fyrir lík­am­legum meiðslum sem breyta lífi þeirra var­an­lega, og önnur bera sál­ræn áföll eftir að hafa orðið vitni að dauða jafn­aldra sinna. Þau hafa verið rekin að heiman aftur og aftur, misst heim­ili sín og menntun þeirra hefur stöðvast algjör­lega.

Vegna skorts á úrræðum til að vinna úr sorg sinni hafa mörg ung­menni á Gaza leitað í skap­andi tján­ingu til að tjá sárs­auka sinn.

Yara Youssef Abu Kweik hellir til­finn­ingum sínum í list­ina.

„Ég teikn­aði áður venju­lega, sjálf­sprottna og lit­rík verk,“ sagði hún í við­tali við Al Jazeera.

„En þegar stríðið skall á fann ég að ég varð að sýna heim­inum hvernig við Palest­ínu­menn á Gaza lifum.“

Hún notar teikn­ingar sínar og mál­verk til að sýna það sem hún hefur séð og upp­lifað á und­an­förnum tveimur árum.

„Ég mál­aði mynd af börnum sem berj­ast við að ná hand­fylli af vatni. Hung­ursneyðin sem við höfum lifað við í áraraðir, lífið í tjöldum, allt þetta hefur markað djúp spor í sál mína.“

Þó að teikn­ing­arnar hjálpi henni að létta á til­finn­ingum sínum, seg­ist hún einnig fá „end­ur­lit“ (e. flashback) þegar hún teiknar upp þessar senur.

Sál­fræð­ingar hafa varað við því að yfir 80 pró­sent barna á Gaza sýni nú ein­kenni alvar­legra áfalla, þar á meðal höf­uð­verk, maga­verk, bein­verki, hár­los, skjall­bletti og veikt ónæm­is­kerfi.

„Í annað sinn sem ég var rekin að heiman byrj­aði ég að mála það sem hefur breytt okkur öllum,“ segir hún.

„Þegar ég var svipt heim­il­inu í annað sinn fann ég þörf til að setja sárs­auk­ann á blað. Ég mál­aði börn og for­eldra þeirra sof­andi á göt­unni, ber­skjald­aða fyrir skot­hríð, sprengjum og nátt­úru­öfl­unum.“

Jafnvel áður en stríð Ísraels gegn Gaza hófst glímdu börn þar við alvar­leg and­leg vanda­mál. Samkvæmt skýrslu Save the Children frá árinu 2022 bjuggu fjögur af hverjum fimm börnum á Gaza við dep­urð, sorg og ótta, og meira en helm­ingur þeirra glímdi við sjálfs­vígs­hugs­anir.

Samkvæmt mati UNICEF hafa meira en 64 þús­und börn verið drepin eða særst á Gaza frá því að stríðið hófst eftir árásir Hamas á suð­ur­hluta Ísraels 7. októ­ber 2023. Að minnsta kosti 68.858 manns hafa látið lífið og 170.664 særst í átök­unum en talan gæti verið mun hærri.

Vopna­hléið sem Banda­ríkin miðl­uðu milli Ísraels og Hamas, sem tók gildi 10. októ­ber, hefur veitt litla hvíld. End­ur­teknar loft­árásir Ísraels og strangar tak­mark­anir á flutn­ingi mat­væla, lyfja og ann­arrar aðstoðar hafa haldið hörm­ung­unum gang­andi.

Samkvæmt Heil­brigð­is­ráðu­neyti Gaza hafa meira en 200 manns verið drepnir og yfir 500 særst í árásum Ísraels eftir að vopna­hléið tók gildi.

Þrátt fyrir sárs­auka sinn og þeirra sem hún lifir með, er Yara Youssef Abu Kweik stað­ráðin í að bæta list­færni sína og senda skila­boð sín út í heim­inn.

Skila­boðin eru ein­föld og skýr:

„Ég tala fyrir hönd allra palest­ínskra barna á Gaza-svæð­inu, og fyrir þeirra hönd segi ég: Nú er nóg komið. Við viljum lifa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.
Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Sjálfvirkt brunavarnakerfi sprautaði vatni yfir matsöluskála á skíðasvæði í Kína. Enginn slasaðist en loka þurfti skálanum tímabundið.

Pólland rann­sakar óþekktan hlut sem féll úr lofti

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest