Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Ævar játaði bensínkortasvik, byssuþjófnað og hnífaburð

Hlaut skilorðs­bundinn dóm

Héraðs­dómur Reykja­víkur hefur dæmt Ævar Annel Valgarðsson í tveggja mánaða skilorðs­bundið fangelsi fyrir fjársvik, þjófnað og tvö brot á vopna­lögum.

Ævar játaði fyrir dómi að hafa í ágúst 2023 notað bensín­kort annars manns í heimildar­leysi til að greiða fyrir vörur á þremur bensín­stöðvum N1 að samtals rúmlega 95 þúsund króna verðmæti.

Hann játaði einnig að hafa brotist inn í geymslu í Reykjavík og stolið þaðan Winchester-hagla­byssu að verðmæti um 40 þúsund króna, auk þess sem hann viðurkenndi að hafa verið með steikar­hníf á sér þegar lögregla framkvæmdi öryggis­leit á honum í apríl 2025.

Málið dróst nokkuð á langinn en við aðal­meðferð játaði Ævar loks sök í öllum ákæru­liðum og samþykkti jafnframt að hnífurinn yrði gerður upptækur.

Við ákvörðun refsingar leit dómurinn meðal annars til þess að ákærði hefði játað brotin, að töluverður tími væri liðinn frá því þau voru framin og að tafir á máls­meðferð yrðu honum ekki kenndar. Þá kom fram að hann hefði farið í meðferð vegna vímuefna­fíknar og hefði fullan hug á að snúa lífi sínu til betri vegar. Að mati dómsins tengdust brotin fíkni­vanda hans.

Refsingin var ákveðin tveggja mánaða fangelsi en fullnustu hennar var frestað til tveggja ára gegn því skilyrði að hann haldi almennt skilorð. Auk þess var honum gert að greiða rúmlega 820 þúsund krónur í sakar­kostnað og málsvarnar­laun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim